- What: Chess tournament results in Iceland
- Impact: No security relevance
Síðasta umferð Íslandsmótsins í skák var leikin í dag í Miðgarði í Garðabæ. Spennan á mótinu hefur verið mikil og nokkuð óvæntur keppandi stóð uppi sem sigurvegari. Hilmir Freyr Heimisson hefur teflt vel á mótinu og hafði fyrir daginn í dag aðeins tapað einni skák, gegn ríkjandi Íslandsmeistaranum og stórmeistaranum, Vigni Vatnari Stefánssyni. Hilmir vann Birni Hólm Birkisson í mikilli baráttuskák í gær og mætti Bárði Erni Birkissyni í síðustu umferðinni í dag. Þar hafði Hilmir betur og varð því Íslandsmeistari í fyrsta sinn á ferlinum með átta vinninga af níu mögulegum. Vignir Vatnar vann lokaskák sína gegn Guðmundi Kjartanssyni og varð því í öðru sæti með sjö og hálfan vinning. Hannes Hlífar Stefánsson varð þriðji með sex og hálfan vinning. Lokastaðan