Sviss vann Alsír 2-0 í leik liðanna í Vancouver í Kanada í nótt. Breel Embolo skoraði fyrra mark Svisslendinga strax á 10. mínútu. Dan Ndoye bætti svo um betur og skoraði seinna mark liðsins á 46. mínútu leiksins. Svisslendingar voru sterkari þó að Alsíringar hafi átt nokkra góða spretti í fyrri hálfleik liðsins. Seinna mark Svisslendinga virtist þó draga úr baráttuþreki Alsíringa og þeir náðu sér ekki á strik eftir seinna markið. Breel Embolo var valinn maður leiksins. Lið Sviss er komið áfram í 16-liða úrslit og mætir næst sigurvegurunum úr leik Kólumbíu og Gana sem verður klukkan 01:30 í nótt að íslenskum tíma.