Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Sviss - Kólumbía

Read Full Article →

Sviss vann Kólumbíu eftir vítaspyrnukeppni og fer áfram í 8-liða úrslit þar sem liðið mætir Argentínu. Ruben Vargas skoraði úr fimmta vítinu og skaut Sviss áfram. Hann setti Vargas nafna sinn í rangt horn. Sviss fer í 8-liða úrslitin í fyrsta sinn í 72 ár, eða frá HM 1954 þegar þeir voru á heimavelli. Sanchez og Hernandes klúðruðu vítum sínum fyrir Kólumbíu í dag og Akanji klúðraði fyrir Sviss. Þeir unnu því keppnina 4-3 eftir að markalaust var eftir 120 mínútna leik. Það má nánast segja að ekkert hafi gerst í 90 mínútur. Kólumbíumenn komust svo í tvígang nærri því að skora í framlengingu. Lucumí átti skalla í slá og svo fékk Campaz dauðafæri eftir mistök Granit Xhaka en skot hans fór yfir. Nú tekur við eins dags hlé á HM og 8-liða úrslitin hefjast á fimmtudaginn með leik Frakka og Marokkó.

Share this article