Þrír leikir eru á HM í fótbolta í kvöld og í nótt. Fyrst er það leikur Ástralíu og Egyptalands og því næst mæta Messi og félagar Grænhöfðaeyjum. Eyjamenn eru í 64. sæti styrkleikalista FIFA. Aðeins eitt lið sem eftir er í keppninni er neðar og það er Gana sem situr í 65. sæti. Argentínumenn eru ríkjandi heimsmeistarar og í öðru sæti styrkleikalistans. Grænhöfðaeyjar hafa hins vegar komið skemmtilega á óvart. Liðið fór upp úr riðlinum á þremur jafnteflum en nú bíða heimsmeistararnir. Þá verður einnig spennandi að sjá hvort Lionel Messi bæti við mörkum í leiknum. Hann er þegar kominn með sex og er markahæstur ásamt Kylian Mbappé. Loks mætast Kólumbía og Gana í Kansas. Dagskráin: 17:30 Stofan (RÚV) 18:00 Ástralía – Egyptaland (RÚV 2) 20:05 Stofan (RÚV 2) 22:00 Argentína – Grænhöfðaeyjar (RÚV) 01:30 Kólumbía – Gana (RÚV)