Hrafnarnir hlýddu á fréttaskýringaþátt miðilsins Gímaldsins um hátt matvælaverð hér á landi. Þar var meðal annars rætt við Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, sem lýsti því efnislega yfir að þjóðin hefði brugðist sér: „Ég held að samfélagið hafi klikkað,“ sagði Páll Gunnar spurður hvers vegna matvöruverð hefði hækkað jafn mikið og raun ber vitni. Eins og fram kemur í umfjöllun Gímaldsins kenna matvörurisarnir launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri SKE telur að samfélagið allt hafi brugðist: „Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn líta í eigin barm, aðstæður hér á landi ýti undir fákeppni frekar en samkeppni. Frekar sé keppt í þjónustu en verði á matvörum.“ Nú þegar ljóst er að þjóð Páls Gunnars hefur brugðist forstjóranum telja hrafnarnir einsýnt að annaðhvort verði að víkja – þjóðin eða Páll Gunnar. Ýmislegt í umfjöllun Gímaldsins bendir til þess að réttast væri að síðarnefndi kosturinn yrði tekinn. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins.