Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagar styðja við unga frumkvöðla

Read Full Article →

Hagar hafa undirritað samstarfssamning við félagasamtökin Unga frumkvöðla á Íslandi um stuðning við Fyrirtækjasmiðju samtakanna, þar sem framhaldsskólanemar stofna og reka eigin fyrirtæki. Samkvæmt samningnum munu Hagar styðja starfsemina með fjárframlagi og jafnframt er stefnt að því að starfsfólk félagsins taki þátt í verkefninu með þekkingu sinni og reynslu. Fyrirtækjasmiðjan veitir framhaldsskólanemum tækifæri til að stofna og reka eigið fyrirtæki á 16 vikna námskeiði. Þar fá þeir tækifæri til að þróa viðskiptahugmynd frá grunni, móta viðskiptaáætlun, fjármagna reksturinn og fá leiðsögn frá aðilum úr atvinnulífinu. Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segir samstarfið falla vel að áherslu fyrirtækisins á stuðning við nýsköpun í matvælaframleiðslu, meðal annars í gegnum nýsköpunarsjóðinn Uppsprettuna. Sjá einnig Hafa stofnað 80 fyrirtæki í gegnum viðskiptahraðal „Fyrirtækjasmiðjan gefur nemendum innsýn í það hvernig hugmynd verður að vöru eða þjónustu og hvaða skref þarf að taka til að koma henni á markað.“ Á árlegri vörumessu Fyrirtækjasmiðjunnar í Smáralind kynna nemendur afrakstur vinnunnar fyrir almenningi og dómnefnd. Á síðustu vörumessu tóku þátt 150 fyrirtæki sem um 650 nemendum úr 17 framhaldsskólum stofnuðu víðs vegar um landið. Petra Bragadóttir, framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla á Íslandi, segir að samstarfið við Haga muni gera nemendum kleift að koma vörum sínum í dreifingu í verslunum fyrirtækisins. „Samstarf við Haga mun gera nemendum kleift að koma vörum sínum í dreifingu í verslunum félagsins og gera það líklegra að þau haldi áfram með fyrirtæki sín eftir að námi lýkur,“ segir hún.

Share this article