Innlent | mbl | 9.9.2026 | 13:35 Vill heimild til að selja Haga Húsnæði Lyfjadeildar Háskóla Íslands er við Hofsvallagötu 53 í Reykjavík. Húsnæðið nefnist einnig Hagi. Ljósmynd/Háskóli Íslands Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Segir kílómetragjaldið betri kost Logi bregst við gagnrýni: Bendir á 150 milljónir Reikningurinn sendur til vinnandi fólks » Fleiri tengdar fréttir Meðal þeirra eigna sem bætast við langan lista sem fjármálaráðherra er heimilt að selja með nýju fjárlagafrumvarpi, að því gefnu að það verði samþykkt, eru núverandi húsnæði lyfjafræðideildar Háskóla Íslands við Hofsvallagötu sem nefnist Hagi, eignarhluti ríkisins í stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði, ratsjárhús á Reykjavíkurflugvelli og atvinnuhús á Akranesi. Fjárlögin voru kynnt fyrr í vikunni og mun fyrsta umræða um þau hefjast á morgun. Fjölmargt má lesa úr fjárlögum, svo sem helstu stefnur og strauma ríkisstjórnarinnar varðandi tekjur og gjöld, hvaða skattar hækka eða koma nýir inn og hverjir falla út, hvar skera á niður í fjárheimildum og hvar á að bæta við. Einnig er þar hægt að sjá hverju eigi að verja í fjárfestingar og uppbyggingu. Hafa víðtækar heimildir ár eftir ár Fjármálaráðherra þarf svo að fá heimild með lögum til þess að mega ráðstafa fasteignum og lóðum ríkisins og ef kaupa á nýjar eignir. Flestar eignir eða heimildir á þessum lista flytjast ár frá ári og eru sumar heimildirnar mjög víðar, eins og sú fyrsta á listanum: „Að selja eignarhlut ríkisins í húsnæði á vegum grunn-, framhalds- og sérskóla ásamt háskólum í tengslum við endurskipulagningu starfseminnar.“ Sama á við um eignarhluti ríkisins í húsnæði undir heilbrigðisstofnanir, sjúkrahús, heilbrigðistengda starfsemi, húsnæði dómstóla, lögreglu- og sýslumannsembætta o.s.frv. Þegar hefur verið farið ítarlega yfir þetta í meðfylgjandi frétt: Frétt af mbl.is Ráðherra má selja lögreglustöðina á Hverfisgötu Heimild hefur verið til í nokkurn tíma til að selja Tollhúsið við Tryggvagötu 19 í Reykjavík sem og Skógarhlíð 6, þar sem heilbrigðisráðuneytið var til húsa til ársins 2022 þegar það flutti þaðan vegna myglu. Sérstök heimild er svo til að selja húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur við Austurstræti 19 og Landsréttar við Vesturvör 2 í Kópavogi og til að kaupa eða leigja hentugra húsnæði undir báðar stofnanir. Er þessi heimild inni þrátt fyrir að önnur víðtækari heimild sé til að selja, kaupa eða leigja húsnæði fyrir alla dómstóla landsins. Þegar er heimild til að selja húsnæði Landsréttar við Vesturvör. Hvað er nýtt í ár? En vindum okkur að þeim eignum sem bættust við á þessu ári. Í ár er lagt til að veittar verði nýjar heimildir til sölu á sjö eignum. Hofsvallagata 53 í Reykjavík. Í þessu húsnæði, sem gengur undir nafninu Hagi, eru skrifstofur Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands og Rannsóknarstofa í lyfja og eiturfræðum. Er staðsett rétt fyrir neðan Kaffi Vest. Laufásvegur 14 í Reykjavík. Húsnæði sem hefur munað sinn fífil fegurri við Laufásveg. Bakvið húsið er Listasafn Íslands og ská á bak við það er Kvennaskólinn annars vegar og Fríkirkjan hins vegar. Dugguvogur 52 í Reykjavík. Húsnæði sem meðal annars hýsir líkamsræktarstöðina Pumping iron. Vegfarendur um Sæbrautina þekkja húsið líklega vel, en það er einnig á horni Sæbrautar og Súðarvogs. Skipholt 37 í Reykjavík. Skrifstofu og verslunarhúsnæði við Skipholt, en fasteignin teygir sig einnig niður með Bolholti. Á jarðhæð er meðal annars verslunin Lumex. Hafnarstræti 1 á Ísafirði. Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði sem er í miðbænum. Auk fyrirtækja og bæjarstofnana er ríkið þar með starfsemi lögreglustjórans á Vestfjörðum, starfsstöð Skattsins og embætti sýslumannsins á Vestfjörðum í húsinu. Stjórnsýsluhúsið Ísafirði mbl.is/Sigurður Bogi Ratsjárhús á Reykjavíkurflugvelli. Fyrir nokkrum árum var sótt um og samþykkt að rífa húsið vegna annarra endurbóta í nágrenninu. Vesturgata 62 á Akranesi. Atvinnuhúsnæði við Vesturgötu á Akranesi, steinsnar frá Akraneskirkju. Tengdar fréttir Fjárlög 2027 Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Segir kílómetragjaldið betri kost Logi bregst við gagnrýni: Bendir á 150 milljónir Reikningurinn sendur til vinnandi fólks » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn látinn eftir lestarslys í Póllandi „Það er ekki hægt að spyrja þennan mann“ Yfir 300 sagt upp hjá Channel 4 Styttist í United-manninn Vill heimild til að selja Haga Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Óhjákvæmileg óvissa skapast Bjarnargreiði við börnin Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9% Nýjast á mbl.is » Einn látinn eftir lestarslys í Póllandi „Það er ekki hægt að spyrja þennan mann“ Yfir 300 sagt upp hjá Channel 4 Styttist í United-manninn Vill heimild til að selja Haga Umræðan Lífið er kokteilsósa Hvers virði er þjóð fullveldi? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þykk þingmálaskrá en sumt vantar Ísland skrapar botninn í nýrri könnun Útiloka netárás vegna bilunar í flugumferðarstjórn Bjarnargreiði við börnin Mest lesið Í gær Í vikunni Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Leyfa ekki byggingu íbúðarhúsa við Vatnsenda Nýr kafli í baðupplifun á Íslandi Fækkað um einn í framkvæmdastjórninni Skorað á Þorgerði að segja af sér „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Afnám vaxtabóta sparar 800 milljónir Sést kastast af afli af húddi bifreiðarinnar Ísland hrunið mest allra ríkja í PISA Vinna vinnuna en þurfa samt nafn læknis „Mamma þín stendur fyrir utan Hagkaup“ Tæp 60% bóta fara til útlendinga Snorri: Niðurstöðurnar sláandi Bilið breikkar mest á Íslandi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni Kílómetragjald hækki um 15,9%