Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skemmtilegast að keppa í rallý

  • What: A company promotes its off-road vehicle sales.
  • Impact: Not related to cybersecurity.
Read Full Article →

BRP-Ellingsen selur og þjónustar allt það helsta fyrir mótorsportið að sögn Arnars. Can-Am fjórhjól, sexhjól, buggý bíla og mótorhjól, Sea-Doo sæþotur, ásamt Lynx og Ski-Doo vélsleðum, auk þess sem fyrirtækið er með Stark og Sur-Ron krossara. „Buggýbílamarkaðurinn á Íslandi er í miklum blóma og hefur þróast ört síðast liðin 10 ár. Í dag er alls konar fólk, fyrirtæki og stofnanir sem nota slíka bíla í ferðamennsku og vinnu. Úrvalið er mjög breitt og bjóðum við Can-Am bíla fyrir öll möguleg verkefni, allt frá sérhæfðum bílum fyrir viðbragðsaðila, létta pallbíla fyrir bændur og verktaka, 4ra sæta lokaða ferðabíla með miðstöð og útvarpi, yfir í keppnisbíla fyrir rallý,“ segir Arnar. Buggýbílar notaðir í ferðamennsku Hann segir að með breyttri samsetningu bílaflota Íslendinga séu æ fleiri sem kjósi að nota buggý bíla í ferðamennsku og ýmiss verkefni á hálendi Íslands, enda bílar sem eru sérsmíðaðir fyrir grófa hálendisvegi og ódýrari en hefðbundnir jeppar. „Sem dæmi um hve algeng þessi tæki eru orðin var nýlega stofnuð deild fyrir buggýbíla innan 4x4 klúbbsins. Can-Am eru leiðandi í þróun þessa bíla og leggja mikla áherslu á áreiðanleika, jafnframt því sem þeir skara fram úr í afköstum og getu í flestum flokkum. Can-Am hafa því verið söluhæstu buggýbílarnir á Íslandi í mörg ár,“ segir hann. „Við höfum í nokkur ár verið framarlega á Íslandi í rafknúnum mótorhjólum. Nú erum við með þrjú merki, Can-Am, Stark og Sur-Ron. Í Stark og Sur-Ron krossurum erum við með breiða vörulínu, allt frá byrjendahjólum fyrir 8-10 ára yfir í 80 hestafla enduro og motocross hjól fyrir ökumenn sem gera miklar kröfur. Can-Am komu svo af krafti inn á markaðinn í fyrra haust og bjóða götu og ferðahjól í fjórum útfærslum,“ segir Arnar. Mikil framtíð í rafknúnum mótorhjólum „Rafmótorhjólin eru öðruvísi og frábrugðin bensínhjólunum og auðvitað finnst manni oft vanta eitthvað þegar vélarhljóðið og bensínlyktin er ekki til staðar. En þessi hjól hafa svo marga aðra kosti í aksturseiginleikum og snerpu, að maður er fljótur að gleyma því þegar keyrt er af stað. Að okkar mati er mikil framtíð í rafknúnum mótorhjólum og höfum við fjárfest talsvert í þekkingu og tólum til að þjónusta þessi tæki. Hjólin eru almennt kraftmeiri og léttari en bensínknúnu hjólin og ekki skemmir að rekstrarkostnaður þeirra er talsvert lægri en á bensínknúnum hjólum. Drægnin er alltaf eitthvað sem menn hafa áhyggjur af, en hún er í dag orðin nokkuð góð og eru flest hjól með 100-160 km drægni, sem mun bara aukast á næstu árum,“ segir Arnar. Hann svarar hér nokkrum spurningum tengdum bílum og bílferðum. Fjallað er um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article