Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rafmagnaður Cayenne

Read Full Article →

Cayenne er fallega hannaður og hefur breyst mikið frá fyrri kynslóð enda er ekkert sameiginlegt með eldri útgáfu bílsins nema merkið. Hann er orðinn örlítið lengri og breiðari en stærsti munurinn ef hversu mikið lengri hann er á milli hjóla en það finnst fljótt að það er mikið meira pláss fyrir farþega og farangur en áður. Hönnunin er voldug en í senn sportleg sem hæfir Porsche vel. Tveggja línu framljósin eru laglega hönnuð og að aftan eru mjó lárétt afturljós með Porsche-merkinu í miðjunni. Bíllinn er búinn miklum lúxus eins og búast má við frá Porsche. Bogadreginn OLED skjár teygir sig inn í miðborðið og er paraður við stafrænt 14,25 tommu mælaborð og valfrjálsan 14,9 tommu farþegaskjá. Skjárinn er afar sniðugur þar sem að ökumaður getur séð hvað fer fram á skjánum á meðan bíll en er kyrrstæður en um leið og farið er af stað breytist skjárinn þannig að einungis farþeginn sér á skjáinn. Þetta er afar hentugt svo að ökumaður gleymi sér ekki við að horfa á The Fast and the Furious meðan á akstri stendur. Bíllinn er búinn miklum lúxus í innanrýminu eins og búast má við frá Porsche. Sætin aftur í eru með rafstillingu og hægt að færa þau fram og aftur eftir því hvað aftursætis farþegar vilja. Farangursrýmið er rúmgott, samtals yfir 870 lítrar með aftur sætin uppi og er auðveldlega hægt að koma fyrir golfsettum eða veiðigræjum en hægt er að lækka bílinn að aftan með einum takka til að auðvelda hleðslu á þungum farangri. 2,5 sekúndur í hundraðið Bíllinn er mjúkur og góður í akstri í Comfort stillingunni en breytist svo í algert vilidýr þegar skipt er í Sport og Sport + stillingarnar. Rafkerfið í bílnum er afar öflugt og er með 400 kW hleðslugetu. Rafkerfið er í raun einstakt í sinni röð þar sem að það er bæði 400 volt og 800 volt á sama tíma. Rafmótorar skila Turbo bílnum alls 1.164 hestöflum og um 1.500 Nm af togi. Það er gríðarlegt afl og finnst vel í akstrinum. Bíllinn er eins og eldflaug og fer úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 2,5 sekúndum sem er í raun með ólíkindum á þetta stórum bíl. Enn merkilegra er þó fyrir þá sem að þekkja bílaheiminn að Cayenne Turbo er aðeins 4,9 sekúndur frá 100 til 200 kílómetra hraða eða með öðrum orðum aðeins 7,4 sekúndur í 200 km hraða. Sportbílagenin eru í blóðinu hjá Porsche og það sýnir sig enn og aftur þarna. Sérstakur rofi á sportstýrinu gerir ökumann kleift að skipta á milli fjögurra akstursstillinga, þar á meðal nýrrar Comfort stillingar sem virkjar einstakt active ride fjöðrunarkerfi bílsins. Þetta kerfi er valkvætt en það skilar sínu heldur betur. Í akstri yfir ójöfnur er þetta nýja fjöðrunarkerfi ótrúlega mjúkt og skilar afslappaðri akstursupplifun. Kerfið ýtir einnig á móti þyngdarkröftum sem verka á bílinn þannig að í staðinn fyrir að bílinn hallist fram þegar bremsað er hallar hann í raun upp til baka. Hið sama gerist þegar gefið er í og í beygjum. Þá finnur þetta nýja fjöðrunarkerfi þegar bíllinn missir grip á ákveðnu hjóli og notar þá mótor til að ýta dekkinu niður í vegin til að auka grip aftur. Þá lækkar fjöðrunarkerfið sig á nokkrum sekúndubrotum ef teknar eru skarpar beygjur sem eykur mjög á stöðugleika. Cayenne er orðinn örlítið lengri og breiðari en stærsti munurinn ef hversu mikið lengri hann er á milli hjóla en það finnst fljótt að það er mikið meira pláss fyrir farþega og farangur en áður. Urrandi vélarhljóð í boði Porsche hefur hugsað fyrir öllu varðandi aksturinn og hughrifin. Ökumaður getur stillt á urrandi hljóð úr 8 sílindra vél ef honum skyldi leiðast að hlusta á þögnina frá rafmótornum. Þetta er skemmtilegur eiginleiki og ég er viss um að fleiri en ég hafa gaman af að hlusta á magnað vélarhljóðið, alla vega öðru hvoru. Hægt er fá Cayenne með rafmagnshurðum en þægilegt er að geta sest beint inní bílinn og upplifa að hurðir lokist við það eitt að stíga á bremsuna. Þetta er til viðbótar fjöldamörgum þægilegum fídusum sem hægt er að fá í bílinn svo sem upphitaðra armpúða, sóllúgu sem hægt er að gera gegnsæja með einum takka, hreyfanlegir „uggar“ á ytra byrði og fjölmargt fleira. Þá er bílinn nettengdur og hægt er að nota síma eða snjallúr í stað lykils sem er annar nýstárlegur eiginleiki sem boðið er upp á í bílnum. Fjallað er um málið í sérblaðinu Bílar , sem fylgir Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .

Share this article