Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hvað kostar að leigja sundskýlu?

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.7.2026 | 20:38 Hvað kostar að leigja sundskýlu? Tíska meðal stráka að klæðast nærbuxum undir stuttbuxum í sundi. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Verð á leigu sundskýlna er mismunandi eftir því hvaða sundlaug þú ferð í. Hjá sumum er greitt fast gjald en annars staðar greiðir maður hærri upphæð og fær hluta hennar endurgreiddan þegar sundskýlunni er skilað. Litur og tegund sundskýlna eru einnig mismunandi eftir sundlaugum. Upp á síðkastið hefur mbl.is fjallað um þá tísku meðal ungra karlmanna að klæðast sundskýlu eða stuttbuxum og svo nærbuxunum sínum innan undir þegar þeir fara í sund. Hefur sú umfjöllun vakið mikil viðbrögð og margir lýst óánægju sinni með þessa tískusveiflu. Frétt af mbl.is Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gleyma skýlunni? Ein skýring á því að einhverjir velji að fara á nærbuxunum í sund gæti einfaldlega verið sú að einhverjir gleymi sundskýlunni sinni heima. Í flestum sundlaugum landsins er þó hægt að leigja sér sundskýlu í afgreiðslunni. Frétt af mbl.is „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ En hvað kostar að leigja sundskýlu eftir sundlaugum og er einhver hvati til að skila henni eftir notkun? mbl.is hafði samband við nokkrar af vinsælustu sundlaugum landsins og bar saman verð og fyrirkomulag. Verð eftir svæðum Í sundlaugum Reykjavíkur kostar 1.270 krónur að leigja sundskýlu. Í flestum laugunum eru aðeins í boði þröngar Speedo- eða boxer-sundskýlur, meðal annars til að draga úr hættu á að gestir taki þær með sér heim. Í Árbæjarlaug, Grafarvogslaug, Breiðholtslaug og Dalslaug er þó einnig hægt að leigja víðari sundskýlur sem eru rauðar eða bláar. Dæmi um víðar sundskýlur. Þessar eru til leigu í Árbæjarlaug. Ljósmynd/Aðsend Dæmi um þröngar sundskýlur. Þessar eru til leigu í Sundhöllinni. Ljósmynd/Aðsend Í Seltjarnarneslaug kostar leigan 2.500 krónur fyrir svartar, víðar sundskýlur en 1.500 krónur fást endurgreiddar þegar skýlunni er skilað. Í Salalaug í Kópavogi kostar 765 krónur að leigja annaðhvort víðar sundbuxur eða þröngar Speedo- eða boxer-sundskýlur. Í Lágafellslaug kostar leigan 1.100 krónur fyrir Speedo-sundskýlur eða rauðar, víðari sundbuxur. Í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði kostar 940 krónur að leigja svartar, víðar sundbuxur. Í Álftaneslaug kostar leigan 800 krónur fyrir víðar sundbuxur sem eru svartar eða bláar. Í Akureyrarlaug kostar 1.040 krónur að leigja þröngar sundskýlur sem eru ýmist bláar eða svartar. Það er því greinilegt að þótt leiguverðið sé nokkuð breytilegt eftir sundlaugum eiga sundgestir víðast hvar kost á að leigja sér sundskýlu í stað þess að snúa við eða fara í sund í nærbuxunum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Afturelding tyllti sér á toppinn Kreditkortavandræði Landsbankans komin í lag Mannfjöldi bíður eftir brúðkaupi Swift Svisslendingar skila Benín-bronsstyttum Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætt við þéttingu í Grafarvogi Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Segir markmiðin með styttingu hafa náðst Afturelding tyllti sér á toppinn Kreditkortavandræði Landsbankans komin í lag Mannfjöldi bíður eftir brúðkaupi Swift Svisslendingar skila Benín-bronsstyttum Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ellefta langreyðurin veidd Hantaveirufaraldrinum lokið Verð á gramminu ekki fylgt verðlagsþróun Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar

Share this article