Innlent | Morgunblaðið | 16.7.2026 | 11:55 Mikill verðmunur milli sundlauga Íslendingar þyrpast í sund þegar sólin lætur sjá sig. mbl.is/Haraldur Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Eflaust munu fjölmargir landsmenn leggja land undir fót það sem eftir lifir sumars og heimsækja einhverjar af þeim rúmlega 120 sundlaugum sem landið hefur upp á að bjóða. Það kann að vekja athygli einhverra þeirra að töluverður verðmunur er á stökum aðgangi í sundlaugarnar eftir landshlutum. Samkvæmt óformlegri verðkönnun Morgunblaðsins er ríflega 230% munur á dýrasta og ódýrasta aðgangseyri. Skeiðalaug, sem staðsett er í Brautarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, hreppir efsta sætið fyrir hæsta aðgangseyrinn en þar kostar stakt skipti heilar 3.000 krónur. Ódýrast er í sund á Skagaströnd en þar er stakt gjald aðeins 900 krónur. Hér munar því 2.100 krónum eða 233% á aðgangseyri lauganna. Samanburðurinn tekur ekki mið af því að sundlaugarnar kunna að vera misjafnlega vel búnar og bjóða aðgang að mismunandi þjónustu. Skeiðalaug mætti til að mynda titla sem eins konar vellíðunarlaug þar sem boðið er upp á sundlaug, heita potta, tvær sánur, kaldan pott og kalt mistur. Í flestum laugum landsins gefst einnig kostur á að kaupa skiptakort eða þá árskort og fá þannig sundferðina á töluvert lægra verði. Þann 15. apríl tilkynnti Reykjavíkurborg breytingar á gjaldskrám sundlauga þar sem ársgjaldið var lækkað á meðan stakur miði varð dýrari. Ársgjaldið fór úr 48.000 krónum í 34.000 krónur á meðan stakt gjald var hækkað úr 1.430 krónum í 1.500 krónur. Samkvæmt tilkynningu Reykjavíkurborgar er markmiðið með nýju gjaldskránni að hvetja til aukinnar notkunar og stuðla að sanngjarnari gjaldskrá. Með breytingunum er fastagestum sundlauga umbunað á meðan aðrir gestir og ferðamenn borga nær raunkostnaði fyrir þjónustuna. Samhliða gjaldskrárbreytingunum í Reykjavík er í fyrsta sinn boðið upp á áskriftarleið fyrir árskortshafa þar sem ársgjaldinu er deilt niður á 12 mánuði. Verð hækkað margfalt umfram vísitölu neysluverðs Þann 9. febrúar árið 2000 birti Morgunblaðið úttekt á verði á stökum miðum í sund í sundlaugum höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt þeim upplýsingum kostaði sundmiði fyrir einn fullorðinn í sundlaug í Reykjavík þá 200 krónur. Síðan þá hefur vísitala neysluverðs hækkað um 253,4%, sem samsvarar verðhækkun upp á rúmar 500 krónur, og væri sundferðin því á um 700 krónur ef verðið hefði fylgt vísitölunni. Stakur sundmiði hefur hins vegar hækkað mun meira en í Reykjavík kostar 1.500 krónur í sund í dag og er það hækkun upp á 650%. Svipaða sögu má segja af öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt verðsamanburði Morgunblaðsins árið 2000 var ódýrast í sund í Mosfellsbæ en þar kostaði skiptið 110 krónur, sem væri um 400 krónur í dag, miðað við þróun verðlags almennt, en kostar nú 1.300 krónur. Hvað varðar skiptakortin virðast þau fylgja eðlilegri þróun verðlags betur en stakur sundmiði. Árið 2000 kostaði 10 skipta kort í sundlaugar Reykjavíkur 1.300 krónur og samsvarar það 4.594 krónum í dag, miðað við almenna þróun verðlags. Samkvæmt gildandi gjaldskrám Reykjavíkurborgar kostar nú 10 skipta kort 7.000 krónur og hefur verðið því hækkað um 438,5% síðan árið 2000. Gott að velta fyrir sér verðlagi Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna segir að almennt séu almenningssundlaugar ekki reknar með hagnaðarsjónarmiði og sundlaugar bjóði upp á mismunandi þjónustu. Breki minnist á að í fyrra hafi Neytendasamtökin skrifað grein um verð á knattspyrnuleiki og út frá samkeppnissjónarmiðum sé óheimilt að samræma verðskrá á nokkurn hátt. Hann segir að þess megi vænta að það sama gildi um sundlaugar. Hann bætir þó við að ávallt sé gott að vera vakandi yfir verðlagi. Munur á verði eftir búsetu Gjaldskrár sumra sundlauga taka mið af búsetu en til að mynda fá börn og ungmenni undir 18 ára sem búsett eru í Hveragerði frítt í sundlaugina í bænum en öðrum börnum yfir fimm ára aldri ber að greiða 440 króna gjald fyrir aðgang að sundlauginni. Svipað tilfelli má sjá í sundlaugum Reykjavíkur en samkvæmt tilkynningu Reykjavíkurborgar um uppfærða gjaldskrá fá reykvísk ungmenni undir 18 ára aldri nú frítt í sund en börnum búsettum í öðrum sveitarfélögum ber að greiða 400 krónur fyrir skiptið frá 10 ára aldri. Þeim býðst þó sá möguleiki að kaupa árskort á 3.000 krónur. Aðspurður segist Breki í fljótu bragði ekki kannast við önnur tilvik þar sem verð í smásölu eða þjónustu fari eftir búsetu viðkomandi og telur lagalegan grundvöll á gráu svæði. „Ég kannast ekki við þetta í neinum öðrum greinum og ég efast um að þetta standist lög um Evrópska efnahagssvæðið út frá því að þarna er verið að mismuna eftir búsetu. Ég hef vissa samúð með sveitarfélögum sem vilja gera vel við sitt fólk en með lögum skal land byggja og ólögum niður rífa. Annaðhvort þarf að fylgja lögum eða breyta þeim,“ segir Breki. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikill verðmunur milli sundlauga Ólafur Þór nýr sveitastjóri Fannst hún eiga svo mikið inni Daníel Þór verður forstöðumaður fjárfestinga Með óhreint mjöl í pokahorninu Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gamalt námsefni burðarás kennslunnar Drungi en bjart fram undan Ár frá gosi og hrinan virðist að lokum komin Komust hjá aflífun hunds Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Varað við hvössum vindhviðum á morgun Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Einn fær 552,5 milljónir Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Mikill verðmunur milli sundlauga Ólafur Þór nýr sveitastjóri Fannst hún eiga svo mikið inni Daníel Þór verður forstöðumaður fjárfestinga Með óhreint mjöl í pokahorninu Umræðan Sumir, hinir og aðrir Kærkomin tímamót á Landsmóti hestamanna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gamalt námsefni burðarás kennslunnar Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Mest lesið Í gær Í vikunni Spara mætti milljarða Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST „Hell week“ á Seyðisfirði Innkalla Vogaídýfu Flækingsfuglinn bíður fullgildingar Varað við hvössum vindhviðum á morgun Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Dæmi um að börn dvelji í neyðarvistun í átta ár Einn fær 552,5 milljónir Hitamet sumarsins fallið Einn fær 552,5 milljónir Komust hjá aflífun hunds Drungi en bjart fram undan Já-sinnar fóru rangt með mjólkurverð Getur ekki orða bundist yfir auglýsingum á RÚV Ólafur og Dorrit sóttu athöfn með Mónakófursta Varað við hvössum vindhviðum á morgun „Sumarið er loksins komið“ Kynnir ný námslok: „Mæta ólíkum þörfum“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Býst ekki við því að hótelið rísi „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“