Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: 16-liða úrslitin byrja

Read Full Article →

Tveir leikir eru á dagskrá heimsmeistaramóts karla í fótbolta í dag; fyrstu leikirnir í 16-liða úrslitum. Gestgjafar Kanada og Marokkó mætast klukkan 17:00, reyndar í Houston í Bandaríkjunum. Kanada menn hafa aldrei komist jafn langt í keppninni en Marokkómenn náðu sínum besta árangri fyrir fjórum árum þegar liðið fór alla leið í undanúrslit. Klukkan 21:00 er svo leikur Paragvæ og Frakklands í Philadelphiu. Paragvæjar komu flestum á óvart með því að vinna Þjóðverja í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitunum. Hvort þeir eigi roð í ógnarsterkt lið Frakka verður að koma í ljós, Frakkar hafa komist í úrslitaleikinn á síðustu tveimur mótum (gull 2018, silfur 2022). Dagkráin 16:30 Stofan (RÚV 2) 17:00 Kanada – Marokkó (RÚV 2) 20:30 Stofan (RÚV) 21:00 Paragvæ – Frakkland (RÚV) 23:05 HM kvöld (RÚV)

Share this article