Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Drónaárásir á olíuinnviði við Sankti Pétursborg

This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, involving Ukrainian drone attacks targeting Russian oil infrastructure near St. Petersburg to disrupt war funding. The attack vector is physical drone strikes, with dozens reportedly intercepted by air defenses. No CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds are applicable or discussed.
Read Full Article →

Úkraínuher gerði í nótt drónaárásir á olíuinnviði í nágrenni við næststærstu borg Rússlands, Sankti Pétursborg. Úkraínuforseti segir árásirnar gerðar til að aftra Rússum frá því að afla sér tekna til stríðsrekstursins með olíuviðskiptum. Úkraínumenn hafa hert árásir á olíuinnviði Rússa síðustu mánuði og farið er að bera á skorti á eldsneyti. Sums staðar hefur verið gripið til þess ráðs að skammta bensín og dísilolíu. Fregnir hafa borist af því að fólk hafi beðið löngum stundum í röð á bensínstöðvum. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að Úkraínuher hefði gert árásir á olíuhöfn sem Rússar nýti til að afla tekna til að knýja stríðsrekstur sinn áfram. Þá sagði Zelensky að gerðar hefðu verið árásir á Kronstadt, mikilvæga flotastöð nálægt Sankti Pétursborg. Úkraínumenn gerðu árásir víðar á olíuinnviði í og við Pétursborg í nótt. Borgin er sú næststærsta í Rússlandi og þar búa um sex milljónir manna. Borgarstjórinn Alexander Beglov sagði í morgun að árásirnar hafi verið stórfelldar en að ekkert manntjón hafi orðið. Stjórnvöld segja að tugir dróna hafi verið skotnir niður. Einn hafi lent í Peterhof. Það er sögufrægur staður, höll og garðar frá átjándu öld, utan við borgina. Ekki hafi orðið skemmdir þar. Stjórnvöld í héraðinu Bryansk og á Krímskaga, sem Rússar innlimuðu 2014, hafa greint frá drónaárásum í morgun og að einn hafi verið drepinn í hvoru héraði. Mikill þungi hefur verið í árásum Rússlandshers á Úkraínu síðustu daga. Borgarstjóri Kyiv lýsti árásum á borgina aðfaranótt fimmtudags sem þeim mestu hingað til. Þrjátíu voru drepnir og yfir níutíu særðir. Meðal skotmarka Rússlandshers voru íbúablokkir.

Share this article