Lögreglan á Suðurlandi hefur í miklu að snúast í dag. Ekið var á gangandi vegfaranda í Vík og bílar skullu saman vestan við Hvolsvöll og á Laugarvatni. Þá hefur lögregla einnig komið að björgunaraðgerðum, bæði á milli Þingvallavegar og Skjaldbreiðarvegar í morgun og á Fimmvörðuhálsi. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir þetta. Hann hvetur ökumenn til að aka varlega. „Það er bara alltaf sama mantran: Að fara varlega og vera ekkert að stressa sig of mikið, njóta veðursins og njóta að ferðast. Vera örugg,“ segir Magnús. Sóttu veikan mann á Fimmvörðuháls Lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir héldu upp á Fimmvörðuháls fyrir hádegi vegna manns sem veiktist alvarlega. Magnús segir manninn hafa verið sunnarlega á Fimmvörðuhálsi, nær Skógum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á staðinn. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að óskað hafi verið eftir þyrlunni klukkan korter í ellefu. Hún sótti manninn og flutti hann á Selfoss. Komst ekki lengra á bílnum og skilaði sér ekki Um fimm í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu og björgunarsveita fyrir ofan Laugarvatn, á milli Þingvallavegar og Skjaldbreiðarvegar. Magnús segir það hafa verið vegna manns sem hafði ekki skilað sér og óskuðu aðstandendur því eftir að að honum yrði leitað. Lögregla og björgunarsveitir héldu á staðinn og fundu manninn. Sá hefði fest bíl sinn eða hann bilað og hann ekki náð símasambandi til að óska eftir aðstoð. Hann var fundinn skömmu fyrir átta í morgun. Magnús segir manninn hafa verið við góða heilsu og gengið meðfram veginum í góðu veðri. Heppni að ekki fór verr í Vík Ekið var á gangandi vegfaranda við verslunarkjarna í Vík í Mýrdal um níu leytið í morgun. Aðalvarðstjórinn segir vegfarandann hafa sloppið án alvarlegra meiðsla. Lögregla og sjúkrabíll fóru á vettvang. Verið er að skoða hvernig slysið kom til. Magnús segir líkur á því að mistök ökumanns hafi valdið því að hann missti stjórn á bíl sínum og ók upp á gangstétt og utan í gangandi vegfaranda. „Það er heppni að ekki fór verr,“ segir hann. Vegfarandinn var skoðaður á staðnum en ekki fluttur á sjúkrahús. Tveir tveggja bíla árekstrar Vestan við Hvolsvöll skullu tveir bílar saman klukkan rúmlega tíu. Magnús segir bílslysið minniháttar. Lögregla og sjúkrabíll fóru á vettvang. Tækjabíll var kallaður út en hann síðan afturkallaður þegar í ljós kom að ekki væri þörf á honum. Ekki liggur fyrir hvort einhver var fluttur á sjúkrahús frá vettvangi. Þá varð annar tveggja bíla árekstur á Laugarvatni um korter í 12. Lögregla og sjúkrabíll voru á leið á vettvanginn þegar fréttastofa náði tali af Magnúsi. Hann sagðist ekki hafa miklar upplýsingar um slysið en taldi það minni háttar.