Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld. Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar. Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. Staddur í brattri brekku og í um þúsund metra hæð Aðstoðarbeiðni barst til Neyðarlínu um hálf sex í gærkvöld en maður, sem var á göngu um Fimmvörðuháls ásamt hópi fólks, lenti í skyndilegum veikindum. Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, frá Vík, Árborgarsvæðinu og úr Vestmannaeyjum voru kallaðar út á hæsta forgangi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Aðstæður voru erfiðar á vettvangi, þoka og lítið skyggni, og þyrlan þurfti því að lenda á flugvellinum á Skógum. Björgunarmenn notuðu línur til að flytja manninn niður brekkuna og að björgunarsveitarbíl. Þá tók um klukkustund að koma manninum niður af hálsinum og að sjúkrabíl, þar sem ástand hans var metið þannig að ekki væri þörf á að flytja hann á sjúkrahús með þyrlunni. Aðstandendur og samferðarmenn mannsins voru fluttir til byggða með honum. Aðgerðum var lokið um klukkan 22 í gærkvöld.