Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Veisluhöld í háloftunum

Read Full Article →

Niko Travel Group, sem rekur meðal annars ferðaskrifstofurnar Kolumbus ævintýraferðir og Ferðaskrifstofu eldri borgara. Niko velti 1,5 milljörðum króna árið 2025, sem var 132% aukning frá árinu 2024, og nam hagnaðurinn 101 milljón í fyrra, samanborið við 21 milljón árið 2024. Sigurður Kristinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Niko, segir árið 2025 hafa litast af heimsreisu félagsins, þá fyrstu sinnar tegundar. Heimsreisan fór fram í janúar síðastliðnum, þar sem 50 Íslendingar héldu á 12 áfangastaði í fjórum heimsálfum um borð í einkaþotu. Að sögn Sigurðar heppnaðist útfærslan ákaflega vel og umframeftirspurn eftir sætum en ferðin hafði verið í undirbúningi í tvö ár. August Hakansson flugstjóri, Dísa Lind Tómasdóttir yfirflugfreyja, Sigurður og Edda Dagmar, eiginkona Sigurðar og meðeigandi Niko ehf, um borð einkaþotunnar við upphaf fyrstu brottfarar heimsr © Aðsend mynd (AÐSEND) Spurður út í forsöguna segist Sigurður hafa lesið um slíkar ferðir erlendis. Þá vissi hann að Loftleiðir, dótturfyrirtæki Icelandair, væri að leigja út lúxusþotur en hann hafði lengi átt í samstarfi við Icelandair. „Ég bankaði bara á dyrnar og bað um fund. Við skoðuðum málið og mér var gert það ljóst að það væri alveg möguleiki að reyna þetta á Íslandi,“ segir Sigurður. Við tók umfangsmikil undirbúningsvinna og leit að áfangastöðum. „Hugmyndin var að færa okkur svolítið víðar, gera hluti sem að aðrir hafa ekki verið að gera. Ég er svolítið í því að fara ótroðnar slóðir. Þarna var ég búinn að sanna fyrir sjálfum mér og markaðinum að það var hægt að selja svona ferð á allt öðru plani,“ segir hann enn fremur en kúnnarnir hafi verið í veisluhöldum í háloftunum. Fleiri heimsreisur eru þá í smíðum fyrir komandi ár og hafa erlendir aðilar jafnvel sýnt því áhuga að kaupa slíkar ferðir af Niko í heildsölu, en sú hugmynd sé komin skammt á veg. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article