Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Enginn öruggur í bransanum

Read Full Article →

Niko Travel Group, sem rekur Ferðaskrifstofu eldri borgara og Kolumbus ævintýraferðir, hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Fyrirtækið meira en tvöfaldaði veltu sína í fyrra og fimmfaldaði hagnaðinn. Sigurður Kristinn Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Niko en hann segir að þrátt fyrir velgengnina sé rekstur ferðaskrifstofa almennt áhættusamur, það geti brugðið til beggja vona og enginn sé öruggur. Hann tekur sem dæmi fall flugfélagsins Play í lok september í fyrra en bókfært tap Niko vegna gjaldþrotsins hafi numið 20 milljónum króna. Sem betur fer hafi félagið átt varasjóði til að bregðast við en dæmi eru um aðrar ferðaskrifstofur sem reyndust ekki svo lánsamar. Þar áður hafi Covid faraldurinn haft mikil áhrif og nýverið hafi stríðsátök fyrir botni Miðjarðarhafs haft mikil áhrif, meðal annars á eldsneytisverð. „Við erum að undirbúa mjög stóra ferð á borð við þá sem við vorum með í febrúar þegar við flugum í beinu flugi með 300 manns til Rio de Janero, en svona ferð er bara háð eldsneytisverði. Það var búið að tvöfaldast miðað við það sem við sömdum um í febrúar áður en stríðið hófst. Þá víkja svona verkefni til hliðar, verða geymd en ekki gleymd,“ segir Sigurður en í ljósi nýjust frétta fer staðan sem betur fer batnandi með hverri viku sem líður. Horfa aldrei um öxl Sigurður segir að honum hafi ekki dottið í hug í sínum villtustu draumum að vöxtur fyrirtækisins á síðustu árum yrði svona mikill. Viðbúið er þó að tekjur muni ekki aukast jafn mikið í ár og í fyrra, þar sem heimsreisa litar afkomu síðasta árs. Á móti kemur að aðrar ferðir seljast betur. „Við erum á næsta ári kannski að bjóða upp á 60-65 hópaferðir en þær voru ríflega 40 árið 2024. Þetta er hæfilegur vöxtur en við erum ekki með útþenslustefnu,“ segir Sigurður. „Við erum upprunalega pínulítið fjölskyldufyrirtæki sem ég og konan mín eigum. Það hafa komið til okkar aðilar og boðist til að fjárfesta í félaginu eða boðið fram sitt fé en við höfum afþakkað það af því að við teljum að heimastjórnin í eldhúsinu sé best. Við viljum ekki vaxa of mikið né of hratt.“ Fyrirtækið hyggist fyrst og fremst halda áfram að þjóna eftirspurninni og svala þörfum kúnnans. „Við horfum aldrei um öxl og spáum aldrei í því hvað keppinautar eru að gera. Við bara höldum áfram, byggjum á okkar eigin verðleikum og horfum ekki til neins nema að fara eftir lögum og reglum og virða allar óskir okkar viðskiptavina. Það er alltaf eitthvað nýtt að koma upp, en við rekum fyrirtækið á samheldni og rosalegum styrk af starfsfólki þar sem allir eru eins og ein fjölskylda.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article