Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hefur ekki trú á að Íslendingar segi „já“ í ágúst

Read Full Article →

„Ég held að Íslendingar séu ekki almennt það heimskir að velja já. Svo ekki verður af aðildarviðræðunum.“ Þetta sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í viðtali við breska miðilinn Telegraph í umfjöllun sem birtist í dag. Vísaði hann þar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið í ágúst. „Hver vill ganga til liðs við nánast gjaldþrota ríkjabandalag?“ sagði Kristján enn fremur. Í Telegraph eru leiddar að því líkur að gangi Ísland í Evrópusambandið fái landið ekki að stunda hvalveiðar áfram. Evrópusambandið leggst gegn þeim. Kristján segir ekkert því til fyrirstöðu að halda hvalveiðum áfram endalaust, svo lengi sem passað sé upp á að veiða ekki of mikið í einu. Hvalveiðivertíð er yfirstandandi og á annan tug langreyða hefur verið veiddur. Náttúruverndarsamtök hafa mótmælt veiðunum harðlega og Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, leitar nú að hvalveiðiskipunum tveimur til að koma í veg fyrir veiðarnar. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um bann við hvalveiðum í vetur. Hún hefur sagt veiðarnar barn síns tíma með tilliti til dýravelferðar.

Share this article