Innlent | Morgunblaðið | 23.7.2026 | 9:21 Aðsend grein: Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Einar S. Hálfdánarson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, ákvað að beita neitunarvaldi gegn því að þjóðin tæki á sig áhættuna af þjóðargjaldþroti vísaði hann til þess að gjá væri milli þings og þjóðar. Þá, eins og nú, var það Samfylkingin og sá hluti Sjálfstæðismanna sem nú er í Viðreisn (Þorsteinn Pálsson, Þorgerður Katrín og Benedikt Jóhannesson) sem barðist með oddi og egg fyrir Icesave-samningnum til að blíðka Evrópusambandið. Þjóðin brást ekki skyldum sínum. Við unnum, Guði sé lof, frækinn sigur í þeirri baráttu. Ég er viss um að Össur Skarphéðinsson er reynslunni ríkari eftir aðildarviðræður sem nú á að vekja upp frá dauðum. Þær eru uppvakningur í ætt við Glám. Rökin þá, líkt og nú, voru að höfða til tilfinninga og hræðslu. Ísland yrði „Kúba norðursins“ ef við tækjum ekki á okkur greiðslurnar til Evrópu var okkur sagt. Rökin fyrir aðild eru, eða ættu að vera, af þrennum toga; efnahagsleg rök, rök sem varða vexti og gjaldmiðla og svo varðandi öryggi. Öryggissjónarmiðin er hægt að afgreiða út af borðinu með lágmarksþekkingu. Fram hafa komið fullyrðingar um að lægri vextir fylgi evru, en það er blekking. Mörg Evrópuríki sem ekki nota evru búa við lægri vexti en evruríkin eða svipaða. Fullyrðing Þorgerðar Katrínar um að útflutningur Íslands sé að 7/10 hlutum í evru er ósönn með öllu, þar leggur hún löngutöng yfir vísifingur. Aðeins 30% útflutningsins er í evru. Engin boðleg greining liggur fyrir um ávinning af aðild eða breyttum gjaldmiðli nema hin takamarkaða evruskýrsla fjármálaráðherra. Og hún var Evrópusambandssinnum svo sannarlega ekki í vil því að hún drap m.a. röksemdir Þorgerðar Katrínar um séríslenskan kostnað af gjaldeyrisvarasjóði. Fórnarkostnaðargreining og áhættumat Ekkert fyrirtæki tekur fjárfestingarákvörðun án þess að gera fyrst áhættumat. En slíkt þarf Þorgerður Katrín ekki að gera eins og sagan sýnir. Hún var reiðubúin að taka milljarðs áhættu fyrir sjálfa sig og slapp stöðu sinnar vegna. Hún lagði ofuráherslu á að gjaldeyrisvarasjóði Íslands, hundruðum milljarða, yrði ráðstafað í þágu banka þar sem hún hafði gríðarlega, persónulega hagsmuni og hafði sitt fram. Hvaða stöðu mun hún hljóta að launum fyrir að koma Íslandi undir Evrópusambandið? Reykjavíkurborg á að gera áhættumöt þegar hún tekur ákvarðanir. Þjóðin hlýtur líka að eiga rétt á að vita, að áhættumati gerðu, um hugsanlega áhættu ríkisins. Og hverju fórnum við? Hvert er verðmæti úthafsveiðanna svo að aðeins eitt dæmi sé tekið? Áhættan af evru Hver er gengisáhættan af að taka upp evru þegar aðeins 30% útflutningsins er í evru? Í hvaða stöðu er mynt þar sem ríkin standast ekki 60% skuldaviðmiðið? Grikkland skuldar 146,1% af þjóðarframleiðslu, Ítalía 137,1%, Frakkland 115,6%, Belgía 107,9%, Spánn 100,7%, Portúgal 96%, Austurríki 85% Finnland 75%, Slóvenía 70%, Kýpur 64% og sjálft Þýskaland 63,5%! Hvenær lætur sú mynt undan? Ekkert af þessu telur Þorgerður Katrín þörf á að upplýsa. Tollabandalag við Evrópusambandið Tollum, sem innheimtir eru á ytri landamærum ESB, er skipt á milli einstakra aðildarríkja og Evrópusambandsins. Til aðildarríkjanna renna 25% til að standa straum af stjórnsýslukostnaði við tollana. Til Evrópusambandsins ganga tekjurnar, eða 75%. Þetta er flottur díll, ekki satt? Ef lesandinn ætlar að kaupa sér bíl sem framleiddur er í Asíu væri kannski góð hugmynd að flýta kaupunum. Tollurinn er nefnilega að lágmarki 10% en getur orðið allt að 35%. Tollaprósenta getur farið upp í 17% fyrir ákveðnar vörur, t.d. suman fatnað (stundum 12%) og viss matvæli. Svona má áfram halda. Þorgerður Katrín telur enga þörf fyrir að upplýsa landann um áhrif tollanna á budduna hans. Okkur á að duga að horfa í augun á henni og treysta framhaldinu. Þorgerður Katrín, hverjar verða tollgreiðslur Íslands? Eða verðum kannski undanskilin tollunum? Aðildargjöldin til Evrópusambandsins Þorgerður Katrín er þögul eins og gröfin um greiðslurnar til Evrópusambandsins. Hversu háar verða þær Þorgerður Katrín? Verður framlagið, segi ég og skrifa, u.þ.b. 50 milljarðar og fara hækkandi? Öllu því sem að framan er talið ætlar þú, Þorgerður Katrín, að skuldbinda Ísland til að fórna. Og fyrir hvað? Jú, fyrir að fá að nota mynt ríkja í miklum vanda. Er þessi hugmynd ekki hrein sturlun? Þú treystir ekki eigin mynt eins og aðrar Evrópuþjóðir sem gengur vel. Og ekki viltu, vegna Trumps, nota myntina sem er okkur langmikilvægust í viðskiptum! Af hverju ræðirðu þá ekki við Kanadamenn og biður þá ásjár – frítt? Eða ætlarðu kannski að fá undanþágu frá aðildargjöldunum líka? Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Aðsend grein: Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Bergrós að gera góða hluti á heimsleikunum Verðbólgan á uppleið Besti maður HM lengi frá? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Velferðin þarf verðmætasköpun Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Smæð Íslands okkar mesti styrkur Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Aðsend grein: Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Bergrós að gera góða hluti á heimsleikunum Verðbólgan á uppleið Besti maður HM lengi frá? Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Gjáin milli sannleikans og Evrópusambandssinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málarar með tárin í augunum í vætunni „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Ákæru á hendur Skúla vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni Þungbært mál Íslendings í Noregi Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Smæð Íslands okkar mesti styrkur Færir rök gegn notkun tækninnar við nám Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Léttir víða til: Blíðviðri sunnan heiða á morgun Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bongóblíðu loks spáð vestanlands Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá