Innlent | Morgunblaðið | 4.7.2026 | 21:05 Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Fjölbreytt líf á fjöllum, segir Björn Jónsson hér í viðtalinu. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Dag frá degi, nú í byrjun júlí, fjölgar þeim ferðamönnum sem koma í Landmannalaugar. Leiðin þangað frá Sigöldu varð fær nærri þjóðhátíðardegi og nú í vikunni var komist um Dómadalsleið úr Landsveit. „Vegurinn um Dómadalinn er aðeins fyrir rútur, jeppa og öfluga fjórhjóladrifsbíla. Þarna eru breið vöð á ám og enginn ætti að aka yfir þau nema vera viss um að bíllinn ráði við aðstæður,“ segir Björn Jónsson, skálavörður hjá Ferðafélagi Íslands. Hann er einn fimm starfsmanna FÍ sem þarna standa vaktina á hverjum tíma, aukin heldur eru landverðir frá Náttúruverndarstofnun á svæðinu og flokkar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg á hálendisvakt. Ótölulegur hópur – einhver hundruð – var á Laugum þegar Morgunblaðið kom þar við nú í vikunni. Á svæðið eru daglega áætlunarferðir Kynnisferða og Trex. Margir voru í morgunsárið að tygja sig til göngu á Laugaveg suður í Þórsmörk. Um 14.000 manns fóru Laugaveginn í fyrra og ætla má að fjöldinn verði svipaður í ár. Útlendingar eru í miklum meirihluta þarna: Þjóðverjar, Frakkar og Bandaríkjamenn. Leiðin er vel þekkt í samfélagi göngu- og útivistarfólks eftir frásagnir til dæmis National Geographic. Svona var líf í Landmannalaugum á rigningarmorgni nýlega. Vakta hverjir leggja á veginn „Við vöktum vel hverjir leggja á Laugaveginn, 55 kílómetra langan, og komum þeim upplýsingum til þeirra sem eru á vaktinni í skálunum í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Hvanngili og á Emstrum. Þannig á að tryggja að allir skili sér í hús að kvöldi og ef ekki eru gerðar ráðstafanir og eftirgrennslan hafin. Þar munar um að björgunarsveitir séu hér,“ segir Björn. „Fyrir öllu er að þeir sem ætla Laugaveg séu vel útbúnir, í skjólgóðum fötum og í góðu formi. Sú er raunin með flesta en stundum hendir vissulega að við þurfum að fá fólk ofan af fyrirætlunum sínum. Einn var hér í fyrra í léttum sumarfötum og ætlaði rétt sem snöggvast að skreppa suður í Þórsmörk. Þann tókst að stoppa af.“ Björn kom á vaktina í Landmannalaugum þann 17. júní en þetta er annað sumarið hans á svæðinu. Í annan tíma sinnir hann húsvörslu í Þjóðleikhúsinu. Hann er við bakdyrnar þar sem leikarar og fleiri koma í hús. „Leikhúsið er heillandi heimur; með karakterum og sviðsmyndum. Íslensk náttúra hér inni á reginfjöllum er samt enn stórbrotnari og störfin hér fjölbreytt. Líflegt allan daginn og verkefnin fjölbreytt; að vísa fólki veginn, rukka fyrir tjaldsvæði og gistingu, tína rusl og þrífa, afgreiða í sjoppunni og hér og svo framvegis. Engir dagar eru eins, svo fjölbreytt er lífið á fjöllum,“ segir skálavörðurinn. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lést eftir árás á Íslandsbryggju „Í einfaldleika býr kraftur“ Brúðkaup í miðri veiðiferð í Blöndu Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Markaðurinn furðufljótur að jafna sig Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Allt að 17 stiga hiti Bongóblíða í Reykjavík á morgun Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Nýjast á mbl.is » Lést eftir árás á Íslandsbryggju „Í einfaldleika býr kraftur“ Brúðkaup í miðri veiðiferð í Blöndu Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Fékkstu útborgað í vikunni? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipulagði innflutninginn í gegnum Signal Rétt að staldra við áform um sparkvöll Mennirnir þekktust: Ekki í lífshættu eftir árásina Lækkun ekki samanburðarhæf Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Allt að 17 stiga hiti Bongóblíða í Reykjavík á morgun Stebbi Hilmars bætist við í hópinn á Skaganum Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita