Innlent | Morgunblaðið | 19.7.2026 | 19:44 Ferðalangarnir lenda sjaldnar í klandri Landvörður Gunnar á vaktinni í Nýjadal. Í baksýn er skáli Ferðafélags Íslands þarna á miðri Sprengisandsleið. Ljósmynd/Aðsend Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Umferðin hér á hálendinu eykst með hverjum deginum og eftir því sem lengra líður fram á sumarið,“ segir Gunnar Njálsson landvörður. Þessa dagana stendur hann vaktina í Hólaskóla á Skaftártunguafrétti, vinsælum viðkomustað ferðamanna sem fara um Fjallabaksleið nyrðri. Á því svæði sem Gunnar starfar á og sinnir eru Eldgjá og Langisjór, staðir sem eru nokkuð úrleiðis og ferðamenn hafa því stundum haft mjög lengi á stefnuskránni að heimsækja. Þekking á landinu æ betri Gunnar, sem nálgast sjötugt, er úr Grundarfirði og var í áratugi til sjós. Ferill hans á fjöllum hófst svo árið 2004. Fyrstu sumrin var hann skálavörður Ferðafélags Íslands í Nýjadal á Sprengisandsleið og í sæluhúsum við Laugaveginn svonefnda. Síðustu 17 árin, frá 2009, hefur hann verið landvörður í Vatnajökulsþjóðgarði og verið á ýmsum stöðum innan landamæra hans. „Ég er búinn að vera lengi við störf á hálendinu og mér finnst eftirtektarvert að þekking ferðafólks á stöðum og aðstæðum verður sífellt meiri. Stundum hér áður fyrr kom fólk sem hafði aðeins mjög óljósar hugmyndir um land og leiðir. Nú er þetta miklu betra; sennilega eru túristar í einhverjum tilvikum búnir að leita á netinu upplýsinga um staðhætti og eru því með hlutina á hreinu. Að minnsta kosti hendir síður nú en áður að ferðalangar lendi í einhverju klandri sem þarf að leysa og hjálpa þeim með,“ segir Gunnar Njálsson og bætir við að á fjöllum muni mjög um Hálendisvakt björgunarsveitanna. Þar sé í flokki fólk sem margan vanda hafi leyst. „Frá því ég byrjaði í þessu öræfabrölti hafa komið betri bílar og sterkbyggðari, eins og þarf til dæmis þegar ekið er yfir óbrúaðar ár. Þar er aðgæslu þörf og sjálfur get ég viðurkennt að til að byrja með var ég smeykur við læki og jökulkvíslar sem fara þurfti yfir. Núna, kominn með langa reynslu og á góðum bíl, er þetta ekkert mál,“ tiltekur landvörðurinn. Oft er hann nefndur Gunnar í Nýjadal – svo tengdur er hann staðnum – enda þótt starfsstaðirnir séu fleiri. Suddi fram eftir sumri „Nú fram eftir sumri hefur SV-átt verið algeng inni á hálendinu og því fylgt kuldi. Hitastigið í Nýjadal fyrstu dagana í júlí var oft 4-5 gráðurnar, skýjaloft og suddi. Stundum gránaði líka í fjöll yfir nóttina. Skaftártunguafréttur þar sem ég er nú stendur miklu lægra í landinu og því er veðrið betra hér. Staðarheitið Hólaskjól segir raunar talsvert um aðstæður og veðráttuna á þeim stað sem ég er nú,“ segir Gunnar, sem verður á þessum slóðum með hléum langt fram í ágúst. Í september liggur leiðin svo aftur í Nýjadal til þess að fylgjast með framkvæmdum á svæðinu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Spánn – Argentína, staðan er 0:0 Ferðalangarnir lenda sjaldnar í klandri Landsréttur áfram utan Reykjavíkur Axel og Guðrún fögnuðu sigri Falinn háski á heimilinu: Gamlir munir sem geta valdið slysum og heilsutjóni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jetten neitar tali um undanþágur „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Besti árangur Íslands í 20 ár Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Spánn – Argentína, staðan er 0:0 Ferðalangarnir lenda sjaldnar í klandri Landsréttur áfram utan Reykjavíkur Axel og Guðrún fögnuðu sigri Falinn háski á heimilinu: Gamlir munir sem geta valdið slysum og heilsutjóni Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Mest lesið Í gær Í vikunni „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Besti árangur Íslands í 20 ár Stúkan umdeilda hafi hátt varðveislugildi Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Hafnar orðum Þorgerðar Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Sögulegt hús í nýjum búningi „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir