Innlent | Morgunblaðið | 5.7.2026 | 13:23 Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Erna stofnaði endurhæfingarmiðstöðina Ljósið árið 2005 og hefur verið framkvæmdastýra frá upphafi. mbl.is/Hákon Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Stór tímamót eru hjá endurhæfingarstöðinni Ljósinu sem hefur verið til húsa á Langholtsvegi síðan 2007, eða nánast frá stofnun. Senn líður að flutningum og þá fer öll starfsemi Ljóssins yfir á Gylfaflöt í Grafarvogi en allt húsnæðið á Langholtsvegi er komið á sölu. Ljósinu var komið á fót árið 2005 til að bregðast við skorti á sérhæfðri endurhæfingu fyrir fólk sem glímir við krabbamein, sem og að vera aðstandendum stoð og stytta í gegnum erfiða tíma. Fjöldi fólks hefur notið þess stuðnings og sést það eflaust best á þeim her fólks sem hleypur til styrktar félaginu á hverju ári í Reykjavíkurmaraþoninu. Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins segir að erfitt verði að yfirgefa húsnæðið sem hefur tekið svo vel utan um starfsemina síðustu tvo áratugi. Það verði þó ekki umflúið því starfsemin hefur fyrir löngu vaxið umfram það pláss sem Ljósið hefur til umráða. „Það voru tæplega 1.600 manns sem voru hjá okkur í fyrra,“ segir Erna á meðan hún sýnir mér inn í stóran sal búinn ýmsum líkamsræktartækjum. „Á hverjum degi geta komið hátt í 150 manns. Þetta eru yfirleitt svona 550 til 600 einstaklingar á mánuði.“ Hátt er til lofts í rýminu og gott pláss en Erna útskýrir að þar sem salurinn gegni tvíþættu hlutverki þurfi iðulega að færa þung tækin til og frá. Hinum megin í húsinu er lítil skrifstofa og ég trúi Ernu varla þegar hún segir að á tímabili hafi hún rúmað tíu manns. Sá vandi var leystur með því að koma gámum fyrir á lóðinni sem innréttaðir voru sem skrifstofur. Ekki er neinum blöðum um það að fletta að Ljósið hefur sprengt húsnæðið rækilega utan af sér. „Við erum með 30 föst stöðugildi og í þeim eru 40 manns. Svo erum við með 16 verktaka. Þannig að þetta er ansi stór hópur,“ segir Erna en Ljósið hefur eftir fremsta megni reynt að skerða rými skjólstæðinga sinna sem minnst. Það verði því afar ánægjulegt að geta búið starfsfólki og þjónustuþegum rýmri aðstöðu. Landsbankinn var áður með aðsetur í aðalhúsnæðinu en ýmsar endurbætur hafa verið framkvæmdar á húsinu síðan. Gamalt bankahús Líkamsræktarsalurinn er í húsnæði á næstu lóð sem Ljósið bætti við sig árið 2019. Handan bílastæðisins sem fylgir fasteignunum er aðalhúsnæðið í hlýlegu húsi þar sem Landsbankinn var með starfsemi til margra ára. Húsið ber fjölbreyttrar starfsemi merki en þar eru jafnt víðir salir fyrir hreyfingu og samkomur sem og notaleg súðarherbergi í risinu þar sem áður var íbúð bankastjóra. Erna útskýrir að í kjallaranum hafi útveggir verið þykkir og rammgerðir vegna bankastarfseminnar en 2012 var afráðið að saga fyrir stórum, björtum gluggum og dyrum með glerhurðum til að hleypa ljósinu inn. Í gegnum slíkar dyr leiðir Erna mig og inn í bjarta sólstofu með borðum og stólum. Hinum megin við glerið er skjólsæll pallur þar sem litrík sumarblómin hneigja sig í andvaranum. Að baki okkar heyrum við starfsfólkið í nýju og rúmgóðu eldhúsinu athafna sig eftir hádegismáltíðina. Starfsemi Ljóssins hefur smám saman orðið umsvifameiri á núverandi stað en fyrst í stað einskorðaðist aðstaðan við bankahúsið sjálft. „Svo var það stækkað 2015 því það var orðið of lítið og það voru líka þröngir stigar en við settum inn lyftu og nýjan stigagang,“ segir Erna og bætir því við að húsinu hafi verið vel haldið við og vel gætt að því að ekki kæmi upp raki neins staðar. Ekki sé hægt að bjóða fólki sem er þegar veikt til heilsunnar upp á slíka áhættu. „Það skiptir miklu máli að loftið sé gott og við pössum okkur rosalega á því að það komi ekki upp mygla eða neitt slíkt,“ segir Erna. Húsnæði Ljóssins hefur alfarið verið fjármagnað með söfnunarfé en hið opinbera kemur ekki að þeim kostnaði. „Við erum komin á fjárlög og með samning við sjúkratryggingar,“ segir Erna. „En við þurfum algjörlega að sjá um húsnæðið sjálf.“ Erna segir opið rými á miðhæðinni vera hjarta hússins þar sem fólk geti komið saman og skrafað yfir kaffibollanum. Stækkun um 500 fermetra Aðspurð segir Erna að húsin tvö verði seld saman en bílastæðið sem skilur þau að er í sameiginlegri eigu húsanna. Hún segist vona að hverfið fái góða starfsemi á lóðina eftir að Ljósið yfirgefi svæðið en Erna ber nágrönnunum vel söguna. „Langbest væri ef einhver félagasamtök, ríkið eða Reykjavíkurborg gætu nýtt þetta undir fólk sem þarf einhvers konar endurhæfingu. Það eru margir þjóðfélagshópar sem þurfa á stuðningi að halda,“ segir Erna en hún telur þó að húsnæðið gæti nýst undir ýmsa annars konar starfsemi. Þó að hún sjái eftir gamla hverfinu er Erna engu að síður spennt fyrir því að geta opnað starfsemina aftur að Gylfaflöt. Í núverandi húsnæði hafa starfsmenn Ljóssins rúma 800 fermetra til að athafna sig en eftir flutningana verða fermetrarnir 1.300 með möguleika á stækkun síðar meir. „Reykjavíkurborg leigði það húsnæði og það var allt í litlum herbergjum og hólfum þannig að við þurftum að leggja í rosalega vinnu við að breyta því öllu,“ segir Erna og útskýrir jafnframt að stækkunin muni bjóða upp á fleiri möguleika en áður. „Við þurfum ekki að loka þjálfunarsalnum eða tækjasalnum þegar það eru leikfimitímar. Við getum þá boðið samhliða upp á tækjasalinn og svo verið með hóptíma í t.d. jóga eða leikfimi, sem skiptir miklu máli.“ Að sögn Ernu eru flutningar Ljóssins fyrirhugaðir í lok ágúst. „Við stefnum á að opna sem fyrst eftir flutningana og vonum að sem minnst röskun verði á starfseminni,“ segir Erna að lokum. Björt rými og litir einkenna aðstöðuna á Langholtsveginum og Erna segir að andinn í húsinu sé einstaklega góður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Bretland - Ísland, staðan er 0:0 Orgelsumarið er hafið Datt á rafhlaupahjóli og braut framtennurnar Tap í öðrum leik Íslands Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaðurinn furðufljótur að jafna sig Lækkun ekki samanburðarhæf Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur Maður lést á Fimmvörðuhálsi „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Bretland - Ísland, staðan er 0:0 Orgelsumarið er hafið Datt á rafhlaupahjóli og braut framtennurnar Tap í öðrum leik Íslands Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Í upphafi skyldi endinn skoða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump ræddi við Pútín á þjóðhátíðardaginn Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Rétt að staldra við áform um sparkvöll Skálavörðurinn er í leikhúsi landslagsins Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur Maður lést á Fimmvörðuhálsi „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum