Sú sem lést í sverðaárás í framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta í gærkvöldi var 17 ára gömul stúlka. Sænska lögreglan staðfesti það í morgun. Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Árásarmaðurinn, sem er 18 ára, verður líklega ákærður fyrir morð og morðtilraunir. Hann er fyrrverandi nemandi við skólann en lögreglan hefur ekki viljað gefa frekari upplýsingar um hann né mögulegar ástæður fyrir verknaðinum. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. Fjöldi nemenda var nærri Fjöldi nemenda var nærri þegar stúlkan var drepin. „Allir tóku skyndilega til fótanna og ég elti bara því ég vissi ekki hvað hafði gerst. Við hlupum eftir gangi og ég sneri mér við og þessi stelpa stoppaði og kærastinn hennar líka og það fyrsta sem kærasti hennar sagði þegar við komum út var að hún væri dáin,“ segir Minnea Wennmyr, nemandi við skólann, í samtali við sænska ríkissjónvarpið SVT. „Það er svo óhugnanlegt að einhver sem maður sat með og spjallaði við sé bara allt í einu dáin,” segir Minnea. Kertum og blómum var komið fyrir utan framhaldsskólann Brinell í Fagersta. Karl Gústaf Svíakonungur sendi samúðarkveðjur í morgun vegna árásarinnar. Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Magdalena Andersson leiðtogi stjórnarandstöðunnar heimsóttu skólann í morgun til þess að minnast látnu stúlkunnar og þeirra þriggja sem særðust í árásinni. Tveir drengir, 12 ára og 17 ára gamlir, særðust alvarlega í árásinni og annar þeirra gekkst undir bráðaaðgerð. Sá þriðji sem særðist hlaut minni háttar áverka. Sautján ára stúlka lést eftir sverðaárásina í Fagersta í gær. Árásarmaðurinn verður líklega ákærður fyrir morð og morðtilraunir. Hann er 18 ára og fyrrverandi nemandi við skólann.