Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.7.2026 | 14:25 Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna Egill Trausti Ómarsson og Hrólfur Vilhjálmsson fóru 15 ferðir upp á Esjuna í gær og í nótt, samtals 100km. Ljósmynd/Aðsend Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Tveir garpar hlupu og gengu til skiptis samtals 100 kílómetra í 15 ferðum upp og niður Esjuna í gær. Þeir Egill Trausti Ómarsson og Hrólfur Vilhjálmsson hækkuðu sig um heila 8889 metra sem jafngildir rúmlega heilu Everest-fjalli (8848 metrar). Afrekið tók sólarhring, eða rúmlega 24 klukkutíma, en ferðinni lauk klukkan tæplega fjögur í nótt. Egill ræddi við mbl.is um þrautagönguna. Frétt af mbl.is „Það er gaman að gera erfiða hluti“ „Djöfull var þetta gaman“ Hvernig er heilsan? „Furðu góð. Það tekur alltaf tíma að koma sér í gang á morgnanna eftir svona. En ég er bara mættur í bröns núna og það er ekkert mál.“ „Markmiðið var upphaflega að fara 100 kílómetra á Esjuna. Fyrir venjulegt fólk hljómar þetta eins og mjög heimskuleg og asnaleg hugmynd en fyrir okkur félagana, þá var hún bara góð.“ Í góðum gír á Steini uppi í Esju. Ljósmynd/Aðsend Hvernig dettur ykkur svona í hug? „Það er nú það sem er svo fyndið við þetta. Þetta er ellefta 100 kílómetra hlaupið mitt. Síðast fyrir mánuði síðan í Hengill Ultra. Í hvert einasta skipti hef ég hugsað í kringum kílómeter 80... Já þetta geri ég ekki aftur.“ „Mér er illt, ég er þreyttur, mig langar bara heim að knúsa konuna mína. En svo vaknaru daginn eftir, illt alls staðar, og ferð að hugsa. Djöfull var þetta gaman. Það eru þessi móment sem þú sækir svolítið í, þessi erfiðu móment.“ Egill segir þá upphaflega hafa ætlað að fara í annað 100 kílómetra hlaup frá Reykjavík til Grindavíkur en þar sem það var lagt af kom þessi hugdetta í staðinn. Aldrei hætt keppni áður Kom ekki upp augnablik þar sem þið voruð nálægt því að gefast upp? „Við höfum hvorugir gefist upp eða hætt keppni áður og þetta var bara á okkar eigin vegum, þannig að það er auðveldara að hætta þegar það er engin keppni. En við vorum bara búnir að setja okkur þetta markmið, að gera þetta. Það var bara aldrei í boði að hætta. En auðvitað kemur alltaf upp móment, sama hver þú ert í svona löngu hlaupi, þar sem þú vilt hætta þegar þú ert að hlaupa upp og niður fjall í heilan sólarhring.“ Aðspurður segir Egill þá vinina hafa farið þá gönguleið sem flestir þekkja á Esjunni, upp að Steini og niður aftur. Þeir hlaupa þá kafla sem þeir gátu á leiðinni upp og gengu þar sem það hentaði betur og hlupu svo niður. Egill hljóp 100 kílómetra í ellefta skiptið á Esjunni. Ljósmynd/Aðsend Fullt af fólki kom til að hvetja Egill og Hrólfur voru heppnir með veður í gær. Margir komu til að hvetja hlauparana við Esjurætur undir bleikskýjuðum himninum. „Það komu örugglega um hundrað manns til að hvetja okkur áfram. Sumir komu til að hlaupa og aðrir að ganga með okkur upp. Þannig að við náðum að búa til geggjaða stemmingu með þessu.“ „Þetta voru vinir, fjölskylda og aðrir hlauparar sem við höfðum ekkert endilega hitt áður.“ Ætlið þið að gera eitthvað svona lagað aftur? „Þetta er alltaf samningsatriði við konurnar að fá þetta í gegn,“ segir Egill. „En yfirleitt förum við að hugsa okkur til á mánudegi eða þriðjudegi...“ „Það er auðvelt að plata okkur í vitleysu,“ bætir hann við að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bretland - Ísland, staðan er 49:41 Runners complete Everest-height challenge on Esja Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna Flugvöllurinn bæði í stríði og friði Ósáttur með byggingu risahótels Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Swift og Kelce gengu í það heilaga Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Maður lést á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Maður lést á Fimmvörðuhálsi Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Bretland - Ísland, staðan er 49:41 Runners complete Everest-height challenge on Esja Hlupu heilt Everest-fjall upp Esjuna Flugvöllurinn bæði í stríði og friði Ósáttur með byggingu risahótels Umræðan Málfrelsi: Hættuleg hugmynd Kælum okkur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rétt að staldra við áform um sparkvöll Lækkun ekki samanburðarhæf Markaðurinn furðufljótur að jafna sig Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Mest lesið Í gær Í vikunni Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Allir með sitt á hreinu á Kjalarnesi Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Maður lést á Fimmvörðuhálsi Hugleikur Dagsson lýsir eftir þjófum Maður sem var til vandræða reyndist eftirlýstur „Grafalvarlegt mál“ Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Andlát: Hallgrímur Jónasson flugstjóri Þrír Kólumbíumenn fluttu kókaín til landsins Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Með allar tölur réttar og fær 2,5 milljónir Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Fjallað um frægt atvik í íslenskri sjónvarpssögu Finnland hefur ekki forspárgildi Myndskeið: Greiðfært um Kjalveg eftir að rúta festist „Grafalvarlegt mál“ Allt að 17 stiga hiti Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Trump yfirgefur landið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum

Share this article