Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Það er gaman að gera erfiða hluti“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 3.7.2026 | 23:40 „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Vinirnir Egill Trausti og Hrólfur lifa fyrir áskoranir og hafa nokkrum sinnum hlaupið 100 kílómetra vegalengd saman. Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki „Mér finnst gaman að gera erfiða hluti og taka á mig erfiðar áskoranir. Mér finnst gaman að vilja hætta og segja við sjálfan mig að ég ætli aldrei að gera þetta aftur en svo um leið og ég kem heim er ég farinn að skipuleggja næsta rugl,“ segir Egill Trausti Ómarsson langhlaupari er blaðamaður slær á þráðinn til að forvitnast um næstu hlaupaáskorun hans og Hrólfs Vilhjálmssonar félaga hans. Þeir félagar kalla ekki allt ömmu sína, enda þaulreyndir langhlauparar sem elska áskoranir. Nú er komið að næsta verkefni og munu vinirnir verja morgundeginum á Esjunni þar sem ætlunin er að hlaupa upp að Steini og niður aftur uns 100 kílómetrum er náð. Þessari vegalengd fylgir um 9.000 metra hækkun en til að setja það í samhengi fyrir lesendur er hækkun Everest-fjalls til að mynda 8.848 metrar. „Mig hefur alltaf langað að klífa Everest en það er kannski ekki í boði,“ segir Egill. „Það er því extra gott að vita af því að við tökum um 9.000 metra hækkun í leiðinni. Ég hef oft tekið 100 kílómetra hlaup en aldrei með svona mikilli hækkun líka.“ Vegalengdin frá fjallsrótum og að Steini er um 6,6 kílómetrar. Þeir þurfa því að fara rúmlega 15 ferðir upp að Steini og niður aftur til að ná markmiði sínu. Það kemur ekki að sök því Egill og Hrólfur eru báðir töluvert vanir því að vera lengi á fótum. Til að mynda hefur Hrólfur gengið þvert yfir Bandaríkin, Skotland og Ísland og hlaupið 170 km með 10.000 metra hækkun í UTMB, einni stærstu langhlaupakeppni í heimi. Egill byrjaði að hlaupa fyrir þremur árum og hefur síðan þá tekið þátt í flestöllum langhlaupakeppnum á Íslandi. Hvað tekur svona verkefni langan tíma? „Í fullkomnum heimi erum við undir 20 klukkutímum að þessu,“ segir Egill en þeir stefna á að byrja hlaupið klukkan fjögur í nótt. „Þetta er í rauninni fyrsta verkefnið sem ég tek að mér í mjög langan tíma sem ég er ekkert endilega viss um að ég klári og það gerir þetta mjög spennandi,“ segir Egill en þetta verður ellefta 100 km hlaupið hans til þessa. Ekki er vitað til þess að einhver hafi lagt í 100 kílómetra vegalengd á Esjunni áður og Egill og Hrólfur munu því setja gott fordæmi ef vel gengur. Aðspurður segir Egill að þeir ætli að fylgjast að allan tímann. „Við höfum hlaupið 100 kílómetra nokkrum sinnum saman áður og alltaf haldið hópinn. Við plönum að halda því áfram.” En hver er ástæðan fyrir þessu öllu saman? „Þetta er hálfgerð fíkn. Þegar þú ert einhvers staðar einn uppi á heiði og ert að klára 100 kílómetra þá líður þér ömurlega. Þér er illt alls staðar, þú ert bólginn í hnjánum og þér er illt í ökklunum. Ég held að þetta sé bara þessi tilfinning, að klára eitthvað sem er erfitt. Það er gaman að gera erfiða hluti, það er bara okkar lífsmottó.” Þar að auki segir Egill að áskoranir sem þessar setji hlutina í samhengi. „Það er alveg ótrúlegt hversu þakklátur þú verður fyrir allt þegar þú upplifir erfiða hluti. Þegar maður er uppi á heiði og það er snjókoma og vindur og þú ert búinn að vera að hlaupa í sjö klukkutíma þá leitar hausinn alltaf heim. Þetta kennir manni hvað maður hefur það gott. En þegar ég er kominn heim þá get ég ekki beðið eftir að fara í pyntingarnar aftur,“ segir Egill og hlær. Sjaldan gengur allt upp Egill segir hluta af skemmtuninni við þessi löngu verkefni vera að leysa öll þau vandamál sem geta komið upp. „Það er mjög sjaldan í svona löngum hlaupum sem allt gengur upp. Næringin getur klúðrast eða þú færð hælsæri og krampa. Maður fer mjög oft bara á hausnum í gegnum svona hlaup.“ Félagarnir hvetja sem flesta til að koma og vera partur af verkefninu. „Það verða veitingar og drykkir í boði fyrir þá sem mæta. Við erum bara að reyna að búa til stemningu og vonandi klára þetta í leiðinni. Við reiknum með að fara á hraða sem flestallir geta tekið með okkur líka og það væri gaman að sjá sem flesta.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Deila um ákvörðun borgarstjóra að taka fæðingarorlof „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Argentína - Grænhöfðaeyjar, staðan er 1:1 Hitabylgjan ógnar stórhátíðarhöldum Ronaldo slær á sögusagnirnar Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Erfitt fyrst að meta áhrifin af styttingu Synda frá Eyjum til lands í minningu Bríetar Felur í sér alvarlegan trúnaðarbrest Mest lesið Í gær Í vikunni Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar Nýjast á mbl.is » Deila um ákvörðun borgarstjóra að taka fæðingarorlof „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Argentína - Grænhöfðaeyjar, staðan er 1:1 Hitabylgjan ógnar stórhátíðarhöldum Ronaldo slær á sögusagnirnar Umræðan Tár, bros og tollar Hagrannsóknir og upplifun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsjárlaus börn fá yfirleitt ekki dvalarleyfi Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Fullyrðing um 25% lækkun stenst ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Datt í lukkupottinn: Pásan skilaði 65 milljónum Vissi ekki að nafn hennar hefði verið birt Pétur ráðinn bæjarstjóri í Grindavík Lögreglan má ekki nota sjúkraflugvélar Allt að 18 stiga hiti og heiðskírt um helgina Andlát: Björn Ólafs Óttast ekki lögreglu: Bjóða magnafslátt og tilboð Hætt við þéttingu í Grafarvogi Vilja að fólk viti sem minnst um förgunina Brunabótamatið hækkaði um 38 milljónir Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Boða grundvallarbreytingar í óþökk heimilislækna Leitaði 292 sinnum á bráðamóttökuna Karlmenn feimnari við skolun afturendans Skúraveður með hagléljum og eldingu Ók yfir göngubrú í eftirför lögreglu 23 sóttu um starf bæjarstjóra í Grindavík Kom á bráðamóttökuna í lífshættulegu losti ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Skuldar þjóðinni skýringar

Share this article