Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 6:00 Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Aðspurð segist Hrönn Ólína ekki hafa á hraðbergi upplýsingar um nöfn þeirra aðila sem fengu sendar eftirlitsskýrslur Hvals. Samsett mynd/Styrmir Kári/AFP Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Hvalveiðar „Grafalvarlegt mál“ Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Evrópusambandsaðild endalok hvalveiða Ellefta langreyðurin veidd Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu » Fleiri tengdar fréttir „Eftirlitsgögn eru opinber gögn og hægt er að óska eftir þeim á grundvelli upplýsingalaga og af því leiðir að okkur er ekki heimilt að sitja á þeim. Það hefur verið óskað eftir þessum gögnum og við höfum afhent þau á þessum grundvelli.“ Þetta segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar, MAST, í samtali við Morgunblaðið. Hverjir fengu afhent? Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., óskaði sl. föstudag eftir upplýsingum um hvort MAST hefði afhent eftirlitsskýrslur um velferð dýra við hvalveiðar og þá hverjum. Benti hann á að í eftirlitsskýrslunum gæti að líta nákvæma staðsetningu veiddra langreyða en út frá því væri hægt að draga ályktanir um hvar skip Hvals héldu sig við veiðar. Frétt af mbl.is „Grafalvarlegt mál“ Sagði hann fyrirtækið hafa rökstuddan grun um að þessar upplýsingar hefðu borist skipinu Bandero. Ekki þyrfti að fjölyrða um að slíkar upplýsingar ógnuðu öryggi sjómanna Hvals. Hefði Hvalur að sjálfsögðu krafist þess að þessar upplýsingar yrðu afmáðar í ljósi yfirlýsinga skipverja á Bandero og forsvarsmanna útgerðarinnar. Aðspurð segist Hrönn Ólína ekki hafa á hraðbergi upplýsingar um nöfn þeirra aðila sem fengu sendar eftirlitsskýrslur Hvals. Ekki virðist hafa liðið á löngu að MAST sendi skýrslurnar úr húsi, en fram hefur komið að eftir að skýrslurnar voru sendar MAST leið ekki langur tími áður en Bandero, bátur samtaka Pauls Watsons, sást í námunda við hvalbátana á miðunum. Fram að því höfðu áhafnir hvalbátanna ekki orðið varar við bátinn. Aðspurð segir hún að rýna þurfi hvort hægt sé að afhenda listann yfir þá sem fengu skýrslurnar afhentar. Spurð hvort ekki sé ljóst að upplýsingar þar um falli einnig undir upplýsingalög segir hún það ekki eiga við, þar sem málið geti varðað persónuvernd. Ekki eins og brúneggjamálið Það er ekki verið að spyrja um persónur, heldur samtök sem hafa látið sig þessi mál varða, t.d. hvalfriðunarsinna. „Við höfum ekki afhent Paul Watson eða hans samtökum upplýsingarnar,“ segir Hrönn Ólína en spurð hvort hún gæti staðfest hvort innlendum samtökum hafi verið afhentar upplýsingar segist hún „ekki hafa þann lista hjá sér“. Frétt af mbl.is Telur vinnubrögð MAST ógna öryggi sjómanna Í fyrirspurn Hvals hf. sem send var MAST sl. föstudag var á það bent að í dómi Hæstaréttar í brúnaeggjamálinu svokallaða hefði komið fram að það teldist til vandaðra stjórnsýsluhátta að gefa aðila sem upplýsingar varða kost á að tjá sig. Af hverju fylgdi stofnunin ekki leiðsögn Hæstaréttar í þessu máli? „Það kom líka fram í dóminum að slík fyrirspurn hefði engu breytt varðandi afhendingu gagnanna. Það er mjög algengt að óskað sé eftir eftirlitsgögnum og þá er viðkomandi eftirlitsþegi aldrei beðinn um álit. Eina undantekningin er í brúneggjamálinu,“ segir Hrönn Ólína og bendir á að þar hafi verið óskað eftir viðameiri gögnum en eftirlitsskýrslum og málin séu því ekki sambærileg. Lesa má nánar um málið á bls.14 í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Hvalveiðar „Grafalvarlegt mál“ Þór kemur í veg fyrir nálægð við hvalveiðiskipin Evrópusambandsaðild endalok hvalveiða Ellefta langreyðurin veidd Safna ekki lengur upplýsingum um staðsetningu » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Brotist inn í verslun og peningakassa stolið Bjart og hlýtt á Norðurlandi Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Krefst uppsagnar leigusamnings Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Umferðarþyngsta helgi ársins Leystu eigið vandamál með nýju fyrirtæki Þrjótar komust yfir viðkvæmar upplýsingar stjórnvalda Maður lést á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Var á göngu með syni sínum Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Sendiherrar íslenskunnar úti um allan heim Myndir: Stemning á Akureyri um helgina „Áminning um hvað fólk er næs“ Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Leystu eigið vandamál með nýju fyrirtæki Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Nýjast á mbl.is » Brotist inn í verslun og peningakassa stolið Bjart og hlýtt á Norðurlandi Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Krefst uppsagnar leigusamnings Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Púlsinn tekinn í miðbæ Reykjavíkur Leystu eigið vandamál með nýju fyrirtæki Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Var á göngu með syni sínum Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Sendiherrar íslenskunnar úti um allan heim Myndir: Stemning á Akureyri um helgina „Áminning um hvað fólk er næs“ Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Leystu eigið vandamál með nýju fyrirtæki Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu