Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Veigar Páll eini nýliðinn í landsliðinu

  • What: Veigar Páll Alexandersson has been selected for the Icelandic national basketball team for upcoming games against Lithuania.
  • Impact: The team will compete in the World Cup 2027 qualifiers.
Read Full Article →

Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen valdi einn nýliða í hópinn fyrir leiki í undankeppni HM 2027 í körfubolta karla. Fram undan eru tveir leikir gegn Litáen en Veigar Páll Alexandersson er eini nýliðinn í hópnum. Veigar Páll er 24 ára gamall bakvörður sem leikur með Njarðvík í efstu deild hér heima. Martin Hermannsson verður ekki með vegna meiðsla. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Kristinn Pálsson koma aftur inn í hópinn. Hvenær eru leikirnir? Ísland mætir Litáen 27. febrúar hér heima. Liðin mætast svo í Litáen 2. mars ytra. Leikirnir verða sýndir á RÚV. Bretland og Ítalía eru einnig í riðlinum og er Ísland sem stendur í 3. sæti eftir einn sigur og eitt tap. Öll fjögur liðin eru hnífjöfn með þrjú stig, en gefið er eitt stig fyrir að mæta til leiks og tvö stig fyrir að vinna leik. Svona er hópurinn Elvar Friðriksson - Anwil Wloclawek í Póllandi - 86 leikir Haukur Helgi Pálsson - Álftanes - 84 leikir Hilmar Smári Henningsson - Stjarnan - 30 leikir Jón Axel Guðmundsson - CB San Pablo Burgos á Spáni- 47 leikir Kári Jónsson - Valur - 45 leikir Kristinn Pálsson - General Contractor Jesi á Ítalíu - 47 leikir Orri Gunnarsson - Stjarnan - 23 leikir Ólafur Ólafsson - Grindavík - 52 leikir Styrmir Snær Þrastarson - CB Zamora á Spáni- 32 leikir Tryggvi Snær Hlinason - Bilbao Basket á Spáni – 81 leikir Veigar Páll Alexandersson - Njarðvík - Nýliði Þórir Guðmundur Þorbjarnarson - KR - 31 leikir Ægir Þór Steinarsson - Stjarnan - 103 leikir

Share this article