Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 10:00 Ekki verið rannsakað áður hér á landi Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, sem fer fyrir rannsókninni og Stefán Þór Björnsson, formaður KVH. Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) hefur skrifað undir samkomulag við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands um að styrkja umfangsmikla rannsókn á sambandi háskólamenntunar, ráðstöfunartekna og árangurs í samræmdum prófum í grunnskóla. Stefnt er að því að niðurstöður rannsóknarinnar liggi fyrir síðar á árinu. Í rannsókninni verður í fyrsta sinn kannað hvernig árangur í samræmdum prófum í grunnskóla tengist vali á háskólanámi og tekjum allt að tveimur áratugum síðar. Stefán Björnsson formaður KVH segir að fyrri rannsóknir hafi varpað ljósi á að arðsemi háskólamenntunar sé mjög lítil hér á landi í samanburði við önnur lönd. Þessi rannsókn gangi hins vegar skrefi lengra með því að tengja saman árangur í samræmdum prófum í grunnskóla, val á háskólanámi og ráðstöfunartekjur síðar á ævinni. Rannsóknarsjóður KVH leggur um 6,3 milljónir í verkefnið. Verðmætasta eign Íslands Spurður af hverju KVH telji svo brýnt að leggjast í rannsókn sem þessa segir Stefán að stéttarfélagið sé það eina hér á landi sem er sérstakur málsvari þeirra sem starfa á sviði viðskipta- og hagfræði og að félaginu sé sérlega annt um að öll opinber umræða um veigamikil mál eins og menntun byggist á góðum gögnum. „Þekkingargrunnur landsmanna er ein verðmætasta eign Íslands og allar rannsóknir sem í raun og veru hjálpa okkur að skilja hann, hvaða áhrif hann hefur á tekjumyndun og hvernig þetta spilar allt saman eru gríðarlega verðmætar fyrir land og þjóð,“ segir hann. „Það er mikilvægt að menn séu í raun og veru ekki að spá og spekúlera eða giska á hvað valdi til dæmis lítilli arðsemi háskólamenntunar. Það er mikilvægt að hafa góð gögn til þess að byggja stjórnvaldsákvarðanir og stefnumótun á í landinu.“ Í því samhengi segir Stefán mikilvægt að hafa aðgang að gögnum á borð við niðurstöður samræmdra prófa til að varpa ljósi á þekkingargrunninn. Hætt var að leggja samræmd próf fyrir árið 2021 en í ár voru slík próf lögð fyrir á ný, þó í breyttri mynd. Hjálpar námsmönnum Stefán segir að niðurstöður rannsóknarinnar muni ekki aðeins nýtast við stjórnvaldsákvarðanir heldur gætu þær þar að auki reynst námsmönnum sem meta sín næstu skref, hvort þeir vilji fara í frekara nám og þá hvaða nám, gagnlegar. Rannsóknin mun ná til um 60-80 þúsund einstaklinga, nær allra Íslendinga sem luku samræmdum prófum frá aldamótum, og er ein stærsta langtímarannsókn sem gerð hefur verið hér á landi á tengslum menntunar, námsárangurs og tekna. Að rannsókninni vinna Gylfi Zoega, Arnaldur Sölvi Kristjánsson og Sigurður Jóhannesson, auk aðstoðarmanna. Arðsemi háskólamenntunar Fallið um nær helming Niðurstöður rannsóknar sem Arnaldur Sölvi Kristjánsson, Gylfi Zoega og Sigurður Jóhannesson unnu fyrir Hagfræðistofnun á síðasta ári sýna að arðsemi háskólamenntunar hér á landi hefur minnkað töluvert frá hruni bankanna árið 2008 en fram að því hafði hún farið vaxandi. Munur eftir kynjum var sérstaklega kannaður og kom í ljós að arðsemi karla af háskólanámi hafði fallið um nær helming en arðsemi kvenna heldur minna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi sögð sterk Svava María ráðin forstöðumaður Forest tilkynnir nýjan stjóra Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Reynir á samstöðu NATO í Ankara Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verið rannsakað áður hér á landi Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Nýjast á mbl.is » Eftirspurn eftir flugi til og frá Íslandi sögð sterk Svava María ráðin forstöðumaður Forest tilkynnir nýjan stjóra Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Reynir á samstöðu NATO í Ankara Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verið rannsakað áður hér á landi Baðstemning á höfninni Tók miklum breytingum: Rétt að staldra við Umferðarþyngsta helgi ársins Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Krefst uppsagnar leigusamnings Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Segir Eyjólf mæta með „hroka og dónaskap“ Var á göngu með syni sínum Ánægja með afturköllun Vilja ný tilboð í tröppurnar Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Stofna hreyfinguna Áfram Ísland í dag Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum