Innlent | Morgunblaðið | 10.9.2026 | 8:56 Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Áslaug Ásgeirsdóttir, Kristín Eysteinsdóttir, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Í grein sem birtist nýlega í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni „Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu“ er því haldið fram að með styrkjum úr evrópskum samkeppnissjóðum hafi Evrópusambandið keypt sér hollustu þeirra fræðimanna sem öfluðu styrkjanna. Sú ályktun er röng. Rannsóknaniðurstöðum er oft vantreyst þegar rannsóknin sem um ræðir er beint fjármögnuð af hagsmunaaðilum. Enda er þá auðvelt að ímynda sér að henti niðurstöður ekki þeim sem fjármagnar verði þeim stungið ofan í skúffu. Það sem hér um ræðir er hins vegar sókn íslensks háskólafólks í almennar, skipti-, nýsköpunar- og rannsóknaáætlanir ESB. Allir háskólar landsins, auk ýmissa stofnana og fyrirtækja, hafa hlotið slíka styrki. Ísland hefur um árabil verið meðal þeirra ríkja sem nýta hvað mest þau tækifæri til nemenda- og starfsmannaskipta sem evrópskt samstarf býður upp á. Jafnframt hafa íslenskir rannsakendur á öllum fræðasviðum sótt með góðum árangri í alþjóðlega samkeppnissjóði Evrópu. Innlendir og erlendir rannsóknastyrkir fjármagna verkefni sem hafa staðist faglegt mat óháðra sérfræðinga. Í vísindasamfélaginu eru styrkir veittir á grundvelli gæða hugmynda, hæfni rannsóknahópa og líkinda þess að verkefnin skili nýrri þekkingu. Það á jafnt við um íslenska sjóði og alþjóðlega. Raunar er árangur íslenskra vísindamanna í alþjóðlegum samkeppnissjóðum einn skýrasti mælikvarðinn á alþjóðlega samkeppnishæfni þeirra. Þegar rannsakendur hljóta styrki úr Horizon Europe eða öðrum alþjóðlegum samkeppnissjóðum er það vegna þess að þeir hafa sannfært alþjóðlegt matsteymi um að rannsóknir þeirra standist samanburð við það besta sem gerist á viðkomandi fræðasviði. Íslensk stjórnvöld verðlauna sérstaklega háskóla sem fá alþjóðlega styrki í gegnum fjármögnun háskólanna, og er þetta svipað og gerist í þeim ríkjum sem við viljum helst bera okkur saman við. Mikilvægi þessara styrkja fyrir öflugt vísindastarf á Íslandi er augljóst þegar horft er til innlendrar fjármögnunar. Á síðasta ári barst 381 gild umsókn í Rannsóknasjóð Rannís, helsta samkeppnissjóð landsins fyrir grunnrannsóknir. Aðeins 64 verkefni hlutu styrk, eða innan við 17% umsókna. Þótt Rannsóknasjóður gegni lykilhlutverki fyrir íslensk vísindi dugar hann ekki einn og sér til að fjármagna þá rannsóknastarfsemi sem íslenskt samfélag þarfnast. Alþjóðlegir styrkir eru því nauðsynleg viðbót við innlenda fjármögnun. Án þeirra yrði vísindastarf á Íslandi fátæklegt. Erlendir rannsóknastyrkir eru ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið. Þeir eru viðurkenning á faglegum gæðum rannsókna og getu rannsakenda til að standast alþjóðlegan samanburð. Það er ástæða til að fagna þeim árangri, ekki tortryggja hann. Góður árangur við að afla styrkja tryggir að íslenskt háskólasamfélag geti verið í fremstu röð. Þannig rennur ávinningurinn til íslensks samfélags alls. Áslaug Ásgeirsdóttir er rektor Háskólans á Akureyri, Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir er rektor Háskólans á Bifröst, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir er rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, Ragnhildur Helgadóttir er rektor Háskólans í Reykjavík og Silja Bára Ómarsdóttir er rektor Háskóla Íslands. Áslaug Ásgeirsdóttir, Kristín Eysteinsdóttir, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mönnuð evrópsk geimferðaáætlun gott markmið Myndskeið: Skelfileg dómaramistök í Njarðvík Aðsend grein: Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Selenskí kominn til Kanada Telur að farið sé á svig við lög Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Heiðruðu Harald konung og settu met Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Mönnuð evrópsk geimferðaáætlun gott markmið Myndskeið: Skelfileg dómaramistök í Njarðvík Aðsend grein: Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Selenskí kominn til Kanada Telur að farið sé á svig við lög Umræðan Köllum spaða spaða Alþjóðlegir rannsóknastyrkir í þágu samfélagsins alls Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undrast röksemdafærslu ráðherra Birta ekki dóma yfir sjálfum sér „Íslenska menntakerfið er ekki að skila árangri“ „Þetta er nú meira ástandið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Gæti margfaldað orkuna Halla: Allir virtust sameinast í kyrrðinni Heiðruðu Harald konung og settu met Þorgerður skaut á Ólaf Ragnar og öfgahægriöfl „Við skuldum engri elítu neitt“ Undrast röksemdafærslu ráðherra Skattarnir meiri en fólk áttar sig á Andlát: Christian Roth Biður Loga afsökunar Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Andlát: Eggert Ólafur Ásgeirsson Icelandair gerir breytingar á innanlandsflugi Borgar sig ekki að fara af stað Hekla Aurora fær óvenjulegt framhaldslíf „Hvers vegna er ég sagður hættulegur maður?“ Segir rök ráðherra byggð á hugsanavillu Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Stöðvaður á 190 km hraða Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Kílómetragjald hækki um 15,9% „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur