Íslenska briddslandsliðið hefur staðið sig með ágætum í opnum flokki á Evrópumótinu sem fer fram þessa dagana í Ríga, höfuðborg Lettlands. Íslenska sveitin sigraði Ungverja í síðustu viðureign sinni sem fór 15-5. Með sigrinum er Ísland sem stendur í 6. sæti, en þátttökuþjóðirnar á EM eru 30. Íslenska landsliðið skipa þeir Sigurbjörn Haraldsson, Stefán Jóhannsson, Birkir Jónsson, Aðalsteinn Hörgensen, Magnús Eiður Magnússon og Ómar Olgeirsson. Jón Hersir Elíasson er svo liðsstjóri íslensku sveitarinnar. Aðalsteinn er reynsluboltinn í hópnum, en hann var í liði Íslands sem varð heimsmeistari árið 1991 og vann Bermúdaskálina svo frægt varð. Síðustu viðureignirnar fram undan Íslenska liðið mætir Írlandi í dag í 26. umferð mótsins og leikur svo í þremur síðustu umferðunum á morgun á móti Ísrael, Grikklandi og að lokum við Belgíu. Takist Íslandi að halda sér á meðal átta efstu liðum mótsins vinnur íslenska liðið sér þátttökurétt á HM sem haldið verður á næsta ári, en þar er keppt um Bermúdaskálina. Framganga íslenska liðsins hingað til á Evrópumótinu hefur verið til sóma, því þetta er besta frammistaða Íslands á EM um árabil. Það verður því spennandi að sjá hvernig síðustu viðureignir mótsins fara og hvort Ísland nái að halda sér meðal átta efstu.