Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland endaði í 7. sæti og keppir um Bermúdaskálina

Read Full Article →

Íslenska liðið hafði átt afar gott mót og unnið hvern mótherjann á fætur öðrum. Alls voru 30 keppnisþjóðir á EM og allir spiluðu við alla eða samtals 29 umferðir. Í dag spilaði Ísland síðustu þrjár umferðirnar á mótu sterkum mótherjum, Ísrael, Grikklandi og Belgíu. Fyrstu tvær viðureignirnar töpuðust en sú síðasta vannst mjög örugglega. Ísland endaði í 7. sæti Evrópumótsins sem er besti árangur Íslands á Evrópumótinu í bridds í lengri tíma. Þessi árangur kemur Íslandi líka inn á heimsmeistaramótið sem haldið verður á næsta ári, en þar verður keppt um Bermúdaskálina. Hana vann Ísland árið 1991 og einn úr liðinu síðan þá var með Íslandi á EM í ár, Aðalsteinn Jörgensen. Auk Aðalsteins var lið Íslands á EM í ár skipað þeim Sigurbirni Haraldssyni, Stefáni Jóhannssyni, Birki Jónssyni, Magnúsi Eiði Magnússyni, Ómari Olgeirssyni og liðsstjóranum Jóni Hersi Elíassyni.

Share this article