Upphafsfundur Áfram Ísland, nýrrar hreyfingar sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins, hefst kl. 17 í dag. Fundurinn fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll en finna má streymi af fundinum neðar í fréttinni. Ræðumenn á fundinum verða Björn Zoëga læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og forstjóri Heima. „Áfram Ísland er helgað baráttu sem drifin verður áfram af jákvæðni og bjartsýni. Áfram Ísland er hreyfing fólks með fjölbreyttan bakgrunn og frá ólíkum sviðum íslensks þjóðfélags,“ segir í tilkynningu sem hreyfingin sendi frá sér í síðustu viku. „Samnefnarinn er að íslenska þjóðin sé fullfær um að sækja fram um leið og hún tekst á við áskoranir sem við blasa hverju sinni. Stór hluti þjóðarinnar telur að Ísland sé land tækifæranna og að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB.“