Hreyfingin Áfram Ísland boðar til opins fundar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í dag sem hefst klukkan 17:00. Nálgast má streymi af fundinum hér að neðan. Ræðumenn verða Halla Signý Kristjánsdóttir, verkefnastjóri og fyrrverandi þingmaður, Hlynur Ársælsson, framkvæmdastjóri, og Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Ískalks. Fundarstjóri verður Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, skógfræðingur og fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Áfram Ísland er vettvangur fólks sem talar fyrir því að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins. Hreyfingin hefur haldið opna fundi víðs vegar um landið að undanförnu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst.