Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Microsoft dregur saman seglin hjá Xbox

Read Full Article →

Microsoft hyggst fækka um 3.200 störfum hjá Xbox í umfangsmikilli endurskipulagningu eftir að áskriftarþjónustan Game Pass stóðst ekki væntingar félagsins. „Rekstur okkar í dag er ekki heilbrigður. Við verðum að endurstilla Xbox,“ skrifaði Asha Sharma, forstjóri Xbox, í minnisblaði til starfsfólks. Með aðgerðunum hverfur um fimmtungur starfa hjá leikjadeildinni. Niðurskurðurinn kemur í kjölfar þess að Game Pass hefur vaxið mun hægar en Microsoft gerði ráð fyrir, að því er segir í frétt WSJ . Samkvæmt gögnum sem birtust í tengslum við kaup félagsins á Activision Blizzard stefndi fyrirtækið að um 77 milljónum áskrifenda á þessu ári. Þjónustan er nú sögð vera með um 30 milljónir áskrifenda. Microsoft hyggst jafnframt selja eða aðskilja fjögur leikjaþróunarver og skoðar framtíð fimmta versins. Samhliða verður útgáfa nýrra leikja dregin saman og fjárfestingu beint í stærstu leikjaseríur félagsins, meðal annars Minecraft, Candy Crush og Fallout. Xbox-tekjur drógust saman um 5% á fyrsta ársfjórðungi og rekstrarframlegð deildarinnar nam aðeins 3% á síðasta rekstrarári. Endurskipulagningin markar umskipti í stefnu Microsoft á leikjamarkaði, þar sem félagið dregur nú úr umfangi eigin leikjaútgáfu eftir að sú áskriftarleið sem átti að knýja vöxt Xbox skilaði ekki þeim árangri sem vonast var til.

Share this article