Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Microsoft tekur stökk

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Microsoft hefur hækkað um tæp 14% eftir að félagið birti uppgjör sem sýndi mesta vöxt Azure-skýjaþjónustunnar frá árinu 2022. Uppgjörið var betra en greinendur höfðu búist við og bendir til þess að mikil eftirspurn sé áfram eftir skýja- og gervigreindarlausnum fyrirtækisins samkvæmt Bloomberg. Tekjur Azure jukust um 43% á fjórða ársfjórðungi rekstrarársins, sem lauk í júní, samkvæmt uppgjöri sem Microsoft birti í gær. Greinendur höfðu að meðaltali spáð um 40% vexti. Tekjur Azure fóru jafnframt í fyrsta sinn yfir 100 milljarða Bandaríkjadala á rekstrarárinu. Microsoft hefur verið í lykilstöðu í uppgangi gervigreindar, ekki síst vegna náins samstarfs við OpenAI. Félagið hefur jafnframt lagt aukna áherslu á þróun gervigreindarlíkana og hugbúnaðar sem getur skilið náttúrulegt mál og framkvæmt verkefni sjálfstætt. Slík þjónusta krefst mikillar reiknigetu og hefur Microsoft því ráðist í umfangsmiklar fjárfestingar í gagnaverum, tölvuafli og sérhæfðum örgjörvum. Fjárfestingarútgjöld félagsins jukust um 70% milli ára og námu 41 milljarði dala á fjórðungnum sem var þó lítillega undir væntingum greinenda. Satya Nadella, forstjóri Microsoft, sagði að nú væru yfir 30 milljónir greiðandi notenda Microsoft 365 Copilot, gervigreindararms fyrirtækisins. Fyrir þremur mánuðum voru þeir um 20 milljónir, sem sýnir hraðan vöxt í notkun þjónustunnar. Heildartekjur Microsoft jukust um 18% á fjórðungnum og námu 90 milljörðum dala. Það var meira en meðalspá greinenda, sem hljóðaði upp á 87,7 milljarða dala. Hagnaður á hlut nam 4,81 dal og var einnig yfir væntingum markaðarins. Uppgjörið er talið styrkja trú fjárfesta á að Microsoft geti nýtt sterka stöðu sína í skýjaþjónustu til að byggja upp tekjur af gervigreindarþjónustu, þrátt fyrir miklar fjárfestingar og harða samkeppni á sviði skýjalausna og gervigreindar.

Share this article