Innlent | Morgunblaðið | 6.7.2026 | 23:50 Flóknara mál en gospellag um bjór Gunnar Hrafnsson segir að tónlist sem er ýmist samin og/eða flutt af gervigreind hafi skotið uppi kollinum víða síðustu misseri. mbl.is/Ólafur Árdal Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Ég fæ mér einn, svo aftur annan. Já, kannski þrjá, æ fokk it fjóra. Ég er í gír, komdu með fleiri. Fleiri hvað? Fleiri bjóra moðerfokker.“ Svo hljómar textinn við lagið Hver er að hringja? sem slegið hefur í gegn á íslenskum samfélagsmiðlum síðustu vikur. Lagið er með nokkra tugi þúsunda hlustana á streymisveitunni Spotify og yfir sex hundruð myndskeið hafa verið birt við lagið á samfélagsmiðlinum TikTok. Þetta væri ef til vill ekki í frásögur færandi ef lagið, sem er í eins konar gospelstíl, bæri ekki mjög augljós merki þess að vera flutt og sennilega samið af gervigreind. Raddir söngvaranna og tónlistarflutningurinn eru nokkuð vélræn og laglínan er, þrátt fyrir að vera nokkuð grípandi, einstaklega ófrumleg. Þar að auki er engin raunveruleg manneskja skráð fyrir laginu en það er birt undir listamannsnafninu „Bjór“. Gunnar Hrafnsson er formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) en spurður hvort gervigreindartónlist sé farin að láta á sér kræla á íslenskum markaði segir hann slíka tónlist hafa orðið meira áberandi undanfarið. „Við lentum í bölvuðu basli með þetta og það var mikið samtal í kringum Söngvakeppni sjónvarpsins. Þá voru grunsemdir um að einhver ákveðinn hluti laga hefði verið gerður alfarið af gervigreind án þess að hægt væri að sanna það,“ segir Gunnar. Hann bætir við að til séu forrit til að greina gervigreindarnotkun í tónsmíðum en eins og gervigreindin sjálf tekur slík tækni nú miklum framförum. „En gervigreindartónlist hefur að minnsta kosti verið að skjóta hraustlega upp kollinum og hún er farin að birtast vel í kringum okkur,“ heldur Gunnar áfram. „Tökum sem dæmi íslenska spilunarlista sem eru á til dæmis Spotify. Þar skjóta upp kollinum lög sem eru kynnt sem íslensk og við vitum að þetta er bara gervigreind.“ Hann segir að þetta sé vandamál því að hvort tveggja hlusti fólk á þessi lög án þess að átta sig á því að um gervigreind sé að ræða og að svokallaðir bottar séu notaðir til að spila umrædd lög stanslaust til þess að afla tekna af lögunum. Því eru áhyggjur uppi um að háar fjárhæðir hafi fallið út úr tekjumódeli streymisveitna til þeirra sem standa að gervigreindartónlistinni í stað listamanna. Ekki skapandi afl En getur gervigreind ekki búið til góða tónlist? „Gervigreindin er ekki skapandi afl, það er ekkert frumkvæði sem kemur frá henni. Það sem þú sérð frá gervigreindinni er bara summa af ógnarlegri gagnanámu,“ segir Gunnar. „Þú getur beðið um lag í kúrekastíl og þá leitar hún bara í útgefið efni og nýtir kannski það sem hún telur að eigi við, býr til einhverja samsuðu úr því og það verður furðu sannfærandi vegna þess að það er byggt á því til dæmis hvernig einhverjir tilteknir aðilar spiluðu og sömdu önnur lög.“ Þannig geti gervigreindin útbúið flotta gítarmelódíu af því að hún tekur beint frá listamönnum sem helguðu líf sitt því að fullkomna listina og þróa hana áfram. Gunnar segist óttast að ungt hæfileikafólk á sviði tónlistar í dag hætti í sífellt meiri mæli við að starfa innan fagsins vegna dvínandi tekjumöguleika, sem innreið gervigreindarinnar veldur meðal annars, og að þar með muni engin almennileg nýsköpun eiga sér stað í faginu. „Þá verðum við eiginlega komin í eins konar Truman Show , verðum bara föst í einhverri endurtekningu. Auðvitað þrífst nýliðun í gervigreind á því að allt það nýjasta og besta frá listamönnum sé námað.“ Gunnar segir að nær öll íslensk tónlist sem gefin hefur verið út hafi sennilega verið nýtt til að þjálfa upp gervigreind sem framleiði svo eigin tónlist úr gögnum. Gervigreindarfyrirtækin fá meðal annars aðgang að tónlistinni í gegnum plötuúgáfur en í liðinni viku gáfu norræn samtök tónlistarflytjenda út yfirlýsingu þar sem þau lýstu þungum áhyggjum vegna gervigreindarsamninga plötuútgefenda við tæknifyrirtæki. Oft hafa þessir samningar verið gerðir án samþykkis listafólks en Gunnar segir brýnt að vernda rétt þess yfir eigin efni sem og tryggja að ef list sé notuð af gervigreind fái höfundar hennar sanngjarna greiðslu fyrir. Hann segir að þegar komi að þessum þáttum sé Ísland í betri stöðu en flest önnur Evrópuríki þar sem svokölluð DSM-tilskipun um höfundarrétt sem samþykkt var af Evrópuráðinu árið 2019 hefur ekki enn verið tekin upp hér á landi. Gunnar segir hana hafa verið mikil mistök og takmarka samningarétt listamanna. „Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hafa áhrif á stjórnvöld og höfundarréttarnefnd og bara alla þessa hagaðila sem fjalla um þetta. Þannig að þegar frumvarpið kemur inn í þingið, sem verður sennilega á næsta ári, verði kannski dýpri skilningur á þessum málum en var áður.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flóknara mál en gospellag um bjór Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Gervigreindin gerir veðurspárnar betri Stöðvuðu rússneska vél yfir Noregshafi Spyr hvort þetta sé rétt forgangsröðun hjá Isavia Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki verið rannsakað áður hér á landi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Framkvæmdi húsleitir og lagði hald á 800 plöntur Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Mest lesið Í gær Í vikunni Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Flóknara mál en gospellag um bjór Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Gervigreindin gerir veðurspárnar betri Stöðvuðu rússneska vél yfir Noregshafi Spyr hvort þetta sé rétt forgangsröðun hjá Isavia Umræðan Dýrt að vera fatlaður íþróttaiðkandi Getur vinnustaðamenning gert fólk veikt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kínversk glæpasamtök grunuð um mansal á Íslandi Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Komugjöld á heilsugæslu tvöfaldast Getur tekið allt að sex mánuði að ljúka rannsókn Mest lesið Í gær Í vikunni Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Var á göngu með syni sínum Guðný er rauðhærðasti Íslendingurinn Karlmaður fannst látinn í Biskupstungum Ósáttur með byggingu risahótels Maður lést á Fimmvörðuhálsi Helsti drifkraftur líkamsklukkunnar Stefna á stærsta Pálínuboð borgarinnar Börn slösuðust í tívolítæki á Stokkseyri Kveðja eftir tvo áratugi á sama stað Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu