Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikil tilþrif í Motul-torfærunni á Egilsstöðum

Read Full Article →

Finnur Aðalbjörnsson á Refnum hafði 10 stiga forskot á toppi mótsins fyrir keppni en 20 stig fást fyrir fyrsta sætið. Ekkert gekk upp hjá Eyfirðingum um helgina og kláraði hann utan topp 10 sætana sem gefa stig til Íslandsmeistara. Sömu sögu er að segja af Andra Má Sveinssyni og Geir Evert Grímssyni en með slæmum árangri um helgina gerðu þeir út um titilvonir sínar. Íslandsmeistarinn frá 2024, Ingvar Jóhannesson á Víkingnum kom, sá og sigraði í Motul torfærunni og hefur nú tekið forystu í mótinu. Hann hefur 8 stiga forskot á ríkjandi meistarann Bjarnþór Elíasson, sem varð að sætta sig við þriðja sætið á heimavelli. Annar varð Guðmundur Elíasson á Ótemjunni. Í flokki sérútbúinna götubíla vann Bjarki Reynisson á Dýrinu eftir talsverð átök.

Share this article