Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslandsmeistari eftir skrautlega atburðarás

Read Full Article →

Fimmta og síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru fór fram á Akureyri um helgina þar sem Íslandsmeistaratitlar voru í boði. Bílaklúbbur Akureyrar hélt Motul-torfæruna en klúbburinn hefur haldið torfærukeppni í Glerárdal síðan 1975. Mesti hasarinn var í sérútbúna flokknum þar sem 24 bílar voru skráðir til leiks og tilþrifin mikil. Ingvar Jóhannesson á Víkingnum leiddi Íslandsmótið fyrir keppni helgarinnar en Jón Örn Ingileifsson var annar. En í þriðju braut af sex bilaði mótorinn í Kagganum og missti Jón Örn þar með alla möguleika á titlinum. Heimamaðurinn Finnur Aðalbjörnsson á Refnum stóð uppi sem öruggur sigurvegari í Motul torfærunni. Hann tók forystu strax í fyrstu braut og endaði á að vinna með 370 stig í forskot á annað sætið. Ingvar Jóhannesson varð um helgina Íslandsmeistari í torfæru eftir skrautlega atburðarás í lokaumferð Íslandsmótsins. Bilun í sjálfskiptingu olli því að Ingvar missti niður mikla forystu sem kostaði hann næstum titilinn. Slapp þrátt fyrir bilun á versta tíma Finnur átti þó litla möguleika á Íslandsmeistaratitlinum en til þess þurfti hann að treysta á að Ingvar færi niður í níunda sætið. Þá tók hins vegar við skrautleg atburðarás. Fyrir lokabrautina sat Ingvar öruggur í öðru sæti á eftir Finni og með níu fingur á Íslandsmeistarabikarnum. En strax í rásmarki bilaði sjálfskiptingin í Víkingnum hjá Ingvari sem skoraði því ekkert stig í lokabrautinni. Hver keppandinn á fætur öðrum fór upp fyrir Ingvar á stöðutöflunni og að lokum hrapaði hann niður í áttunda sætið. En það var naumlega nóg og hlaut Ingvar Íslandsmeistaratitilinn aðeins einu stigi á undan Finni. Í flokki sérútbúinna götubíla vann heimamaðurinn Helgi Heiðar Jóhannesson á Rudda en sigurinn dugði ekki til titils því Brynjar Jökull Elíasson varð annar og þar með Íslandsmeistari í flokknum.

Share this article