- What: Russian banking system faces potential crisis
- Impact: Concerns over increasing loan defaults and economic instability
Ný evrópsk greiningarskýrsla varar við því að rússneska bankakerfið kunni að stefna í bankakreppu á næsta ári. Frá þessu greinir Telegraph . Samkvæmt skýrslunni hefur staða bankanna veikst vegna vaxandi umfangs lána sem hætta er alvarlegum vanskilum, aukinnar skuldsetningar heimila og ríkisstuðnings sem hafi dregið úr áhrifum vandans án þess að leysa undirliggjandi veikleika. Þar segir að efnahagsáföll, svo sem hertar refsiaðgerðir gegn fjármálakerfinu, gætu orðið til þess að vandinn magnist hratt. Þróun þessa má rekja til þess að rússnesk stjórnvöld hafi hvatt banka til að veita niðurgreidd lán til fyrirtækja í varnariðnaði og húsnæðiskaupenda í því skyni að styðja við stríðsrekstur og hagkerfið. Afleiðingin sé að sífellt stærri hluti útlána beri aukna áhættu, á sama tíma og hagvöxtur hefur gefið eftir. Í maí lækkaði rússneska efnahagsráðuneytið hagvaxtarspá sína fyrir árið úr 1,3% í 0,4%. Fjöldi hagfræðinga telur þó að efnahagsástandið sé lakara en opinberar tölur gefa til kynna. Um hálf milljón Rússa varð gjaldþrota á síðasta ári, sem er tæplega þriðjungs aukning frá árinu áður. Yfir 13 milljónir landsmanna voru jafnframt með þrjú eða fleiri lán samtímis. Þá er áætlað að um tíundi hluti fyrirtækjalána verði ekki greiddur til baka, en sumir stærstu bankar landsins telja að allt að 15% neytendalána séu í vanskilum. Greiningin birtist á sama tíma og Evrópusambandið vinnur að 21. pakka refsiaðgerða gegn Rússlandi, en þar er meðal annars til umræðu að bæta um 90 rússneskum bönkum á refsiaðgerðarlista. Verði það að veruleika myndu yfir helmingur þeirra rússnesku banka sem eiga alþjóðleg viðskipti, sæta slíkum takmörkunum. Viðvaranir um stöðu bankakerfisins hafa einnig komið frá rússneskum aðilum. Greiningarmiðstöðin CMASF, sem starfar í nánum tengslum við stjórnvöld, taldi fyrr á þessu ári að bankakerfið uppfyllti þegar tæknileg skilyrði bankakreppu vegna umfangs útlána sem ólíklegt væri að yrðu endurgreidd. Þá sýna gögn frá rússneska seðlabankanum jafnframt að heimili tóku út jafnvirði 381 milljarða rúblna, eða um 624 milljarða króna, úr bankakerfinu í maí. Það er mesta úttekt sem mælst hefur í þeim mánuði frá því að gagnasöfnun hófst árið 1995.