Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Argentína - Egyptaland

Read Full Article →

Argentína vann Egyptaland 3-2 með ótrúlegum sigri og fer í 8-liða úrslit. Egyptar leiddu 0-2 um miðjan seinni hálfleik en Argentína skoraði þrjú mörk á síðasta stundarfjórðungnum. Yasser Ibrahim skoraði fyrsta markið á 15. mínútu með skalla. Argentínumenn fengu víti eftir að brotið var á Tagliafico. Messi tók vítið en klikkaði. Þar með hefur hann klúðrað flestum vítum í sögu HM, jafnt yfir höfuð sem og á stöku móti. Þar eru talin víti utan vítaspyrnukeppni. Mostafa Zico skoraði annað mark Egypta á 67. mínútu eftir góða skyndisókn. Skömmu áður hafði hann skorað en markið var dæmt af vegna brots. Argentínumenn náðu svo fullkominni endurkomu undir lokin. Romero skoraði á 79. mínútu og Messi jafnaði metin á 83. mínútu. Enzo Fernández skoraði svo sigurmarkið á 92. mínútu.

Share this article