Argentína vann Egyptaland 3-2 með ótrúlegum sigri og fer í 8-liða úrslit. Egyptar leiddu 0-2 um miðjan seinni hálfleik en Argentína skoraði þrjú mörk á síðasta stundarfjórðungnum. Lionel Messi setti sex HM met í leiknum Messi bætir enn á met sitt varðandi flest mörk skoruð á lokakeppni HM , en þau eru nú orðin 21 talsins. Þá er þetta einnig met á HM yfir flesta leiki sem leikmaður skorar í, í röð . Hann er búinn að skora í öllum leikjum þessa móts og alls 9 leiki í röð. Messi er einnig sá leikmaður sem hefur oftast klúðrað vítaspyrnu á HM , utan vítaspyrnukeppni. Hann hefur klúðrað fjórum vítum af átta . Einu sinni hefur hann skotið fram hjá og þrisvar hefur vítið verið varið. Hannes Þór Halldórsson markvörður Íslands varði eitt þeirra í 1-1 jafntefli á HM 2018. Messi er einnig sá leikmaður sem hefur oftast klúðrað víti á einu HM , en þau eru nú orðin tvö . Þá bætti hann einnig sitt eigið met varðandi flesta leiki í sögunni , sem eru nú orðnir 31 . Hann er nú einnig sá með flestar stoðsendingar í sögunni á HM, eða níu alls. Maradona átti metið fyrir með átta en nú á Messi það einn. Egyptar voru sprækir Yasser Ibrahim skoraði fyrsta markið á 15. mínútu með skalla. Argentínumenn fengu víti eftir að brotið var á Tagliafico. Messi tók vítið en klikkaði. Þar með hefur hann klúðrað flestum vítum í sögu HM, jafnt yfir höfuð sem og á stöku móti. Þar eru talin víti utan vítaspyrnukeppni. Mostafa Zico skoraði annað mark Egypta á 67. mínútu eftir góða skyndisókn. Skömmu áður hafði hann skorað en markið var dæmt af vegna brots. Argentínumenn náðu svo fullkominni endurkomu undir lokin. Romero skoraði á 79. mínútu og Messi jafnaði metin á 83. mínútu. Enzo Fernández skoraði svo sigurmarkið á 92. mínútu. Allt það helsta úr leiknum. Lionel Messi sló eða bætti sex HM met þegar að Argentína vann 3-2 endurkomusigur gegn Egyptum.