Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sviss vann í vítaspyrnukeppni - ekki komist svo langt í 72 ár

Read Full Article →

Sviss vann Kólumbíu eftir vítaspyrnukeppni og fer áfram í 8-liða þar sem liðið mætir Argentínu. Ruben Vargas skoraði úr fimmta vítinu og skaut Sviss áfram. Hann setti Vargas nafna sinn í rangt horn. Sviss fer í 8-liða úrslitin í fyrsta sinn í 72 ár, eða frá HM 1954 þegar þeir voru á heimavelli. Sanchez og Hernandes klúðruðu vítum sínum fyrir Kólumbíu í dag og Akanji klúðraði fyrir Sviss. Þeir unnu því keppnina 4-3 eftir að markalaust var eftir 120 mínútna leik. Það má nánast segja að ekkert hafi gerst í 90 mínútur. Kólumbíu komust svo í tvígang nærri því að skora í framlengingu. Lucumí átti skalla í slá og svo fer Campaz dauðafæri eftir mistök Granit Xhaka, en skot hans fór yfir. Hérna má sjá allt það helsta úr leiknum. Þar er vítaspyrnukeppnin í heild sinni. Sviss vann Kólumbíu eftir vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Sviss mætir Argentínu í 8-liða úrslitum. Markalaust var eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Sviss komst síðast í 8-liða úrslit á HM 1954. Nú tekur við eins dags hlé á HM og 8-liða úrslitin hefjast á fimmtudaginn með leik Frakka og Marokkó. Svona var vítaspyrnukeppnin Quintero skoraði fyrir Kólumbíu 1-0 Xhaka skoraði fyrir Sviss 1-1 Davinson Sanchez klúðrar fyrir Kólumbíu. 1-1 Sanchez þrumaði boltanum í slána og boltinn fer niður á línuna, en þó ekki inn. Andouni skorar fyrir Sviss. 1-2. Cambaz skoraði fyrir Kólumbíu. 2-2 Akanji klúðraði fyrir Sviss. Boltinn fór hátt yfir. 2-2 Hernandez klúðraði fyrir Kólumbíu. Kobel varði. 2-2 Itten skoraði fyrir Sviss. 2-3. Luis Diaz skoraði fyrir Kólumbíu. 3-3. Ruben Vargas skoraði fyrir Sviss. 4-3.

Share this article