Innlent | Morgunblaðið | 8.7.2026 | 7:00 Kerfið sem át börnin sín Pétur Hafsteinn Pálsson mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu: Í augum Grindvíkinga snýst öryggi þeirra um hvort jörðin svíki þá og hvort einhverjir hnökrar gætu verið á rýmingu. Allt annað eru verkefni tengd heilsu fólks og vilja þess til að endurreisa samfélagið. Þau verkefni eru margvísleg og mikilvægt að aðgreina þau frá öryggisþættinum. Þótt „kerfið“ geri ekki athugasemdir við mat Grindvíkinga á þessum tveimur meginþáttum öryggismála þá hefur það áhyggjur af vandamáli sem kæmi upp við langvarandi rýmingu ef of margir væru fluttir heim. Það er ástæðan fyrir því að það vinnur gegn stefnu Grindvíkinga um endurkomu og endurreisn en aðallega þó gegn ákvörðun bæjarstjórnar um skólahald haustið 2026. Það sem ég kalla „kerfið“ er einhvers konar andrúm og viðhorf fólks sem heldur um stjórnartauma þeirra bjargráða sem fyrir hendi eru. Allt er þetta fólk velviljað Grindvíkingum en situr fast í kerfi sem lifir sjálfstæðu lífi. Fasteignafélagið Þórkatla hefur tekið að sér hlutverk almannavarna með útgáfu óskilgreindra „banndaga“ sem hefur ekkert með áhættuna af hugsanlegu gosi að gera. Almannavarnir ríkisins hafa áhyggjur af börnum sem búið gætu í húsum með kennitölu Þórkötlu en ekki af þeim börnum sem búa í húsum með öðrum kennitölum. Grindavíkurnefndin sáluga dæmdi börn úr leik í Grindavík með skírskotun til erlendra staðla og taldi skuldlausan bæinn ekki hafa bolmagn til að sinna lögbundinni félagsþjónustu með sína óvirku tekjustofna. Ríkisstjórnin gerði þann barnadóm að sínum og viðheldur tekjumissi bæjarins með því að halda sínu félagi frá greiðslu fasteignaskatta sem þarf til að sinna þessum skyldum. Forsætisráðuneytið neitar að hafa átt þátt í kjánaskap Þórkötlu um 12 daga íverudagatalið, sem gerir 18 banndaga í mánuði, en lætur það samt standa með þögninni. Ónýtu áhættumati frá Örugg verkfræðistofu er nú hent á sama tíma og önnur verkfræðistofa er ráðin til verksins. Grunnurinn að þeirra vinnu verður skýrsla frá Alþjóðabankanum númer tvö eftir 100 manna tölvufundi og tveggja daga 40 manna ráðstefnu sem fram fór á þungri ensku að viðstöddum 10 Grindvíkingum um hin ýmsu þolmörk fólks og fyrirtækja út frá erlendum stöðlum en hvorki um jarðveginn né rýmingarplönin. Forsætisráðherra hefur neitað að taka á Þórkötlubullinu nema að fengnu þessu nýja áhættumati sem væntanlega verður klárt fyrir haustið. Þar með hefur „kerfinu“ tekist ætlunarverk sitt sem var að fækka þeim sem ætluðu að flytja til Grindavíkur með börnin sín til skólavistar þetta haustið. Enginn einn tók þessa ákvörðun og um það var aldrei haldinn fundur. Andrúmið innan bírókratans og viðhorfin sem þannig sköpuðust gerðu það. „Kerfið“ hefur sannfært sjálft sig um að Grindvíkingum sé betur borgið undir þess verndarvæng en þeim sjálfum. En þótt tekist hafi með tafaleikjum að fækka í hópnum og gera endurreisnina erfiðari en ella verða skólar opnaðir í haust í Grindavík, nema ef raunveruleg hætta kemur í veg fyrir það. Ég þykist vita að nýr bæjarstjóri Grindavíkur muni horfa til framtíðar og festi sig ekki í mistökum fortíðar þótt hann komist ekki hjá því að greiða úr þeirri flækju sem hún færir honum. Ég óska honum velfarnaðar í starfi og býð hann velkominn í baráttuhópinn. Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Aðsend grein: Kerfið sem át börnin sín Aðsend grein: Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst 47 ára og sýndi línurnar í bikiníi Óvanalegt að skrifa um listgrein kvenna Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þór yfirgefur Bandero: Erum með gott auga á skipinu Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Ófarirnar frá 1066 ekki endurteknar Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Skapar óviðunandi hættuástand Setur upp grímu og verður ný persóna Hjón á forsetalistanum Sleppingar auka ekki laxagöngur Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Nýjast á mbl.is » Bjóða peninga fyrir upplýsingar um hvalveiðiskipin Aðsend grein: Kerfið sem át börnin sín Aðsend grein: Þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst 47 ára og sýndi línurnar í bikiníi Óvanalegt að skrifa um listgrein kvenna Umræðan Aukin alþjóðaviðskipti Kerfið sem át börnin sín Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Bindur vonir við fundinn í Ankara Landverðir búa sig undir mikinn fjölda Nýr bæjarstjóri vill líta til framtíðar Mest lesið Í gær Í vikunni Hvað sögðu ungir eftir fund Áfram Íslands? Nálgunarbanns krafist Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Áfram nærri 22 gráða hiti Skapar óviðunandi hættuástand Setur upp grímu og verður ný persóna Hjón á forsetalistanum Sleppingar auka ekki laxagöngur Rannsókn lokið eftir 20 mánuði Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Lögmaður og fangavörður enn með stöðu sakbornings Skemman varð fljótt alelda Hringveginum lokað á morgun Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi