Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Kjartan Örn Sigurðsson mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Kaupmáttur hefur aukist, verðbólga lækkað frá toppnum og vextir eru lægri en þeir voru. Staða heimilanna er að mörgu leyti sterk í sögulegu samhengi. Samt hefur svartsýni sjaldan mælst meiri. Væntingavísitala Gallup er enn óvenju lág og bæði almenningur og fyrirtæki horfa dekkri augum til framtíðar en tölurnar gefa tilefni til. Hagfræðingar nefna ýmsar skýringar. Alþjóðlega óvissu, stríð, verðbólgu og vaxtastig. Allt skiptir þetta máli. En flestar skýringarnar leita í kunnuglegar hagstærðir, án þess að spyrja hvað vísitalan er að mæla. Það minnir á vinnustaði, þar sem við mælum líðan starfsfólks en gleymum stundum að skoða orsökina að baki niðurstöðunum. Í fyrri greinum hef ég fjallað um vinnustaðamenningu. Um skýrar leikreglur, sanngirni, traust og hvernig góðir stjórnendur skapa skýrleika þegar óvissa eykst. En af hverju ættu sömu lögmál ekki að gilda um samfélagið allt? Fyrirtæki eru mannleg kerfi. Samfélög eru það líka. Hugsum okkur skip á hafi úti. Það skiptir ekki aðeins máli að skipstjórinn taki réttar ákvarðanir. Áhöfnin þarf líka að vita hvert skipið stefnir. Góður skipstjóri lætur reglulega heyra í sér úr brúnni, útskýrir veðrið, fer yfir kortið og segir hvað bíður handan næsta höfða. Sjórinn verður ekki rólegri. En áhöfnin verður rólegri. Er ólíklegt að sama lögmál gildi um þjóðir? Sagan geymir bæði leiðtoga sem lyftu þjóðum upp úr erfiðleikum og aðra sem leiddu þær út í hörmungar. Þrátt fyrir ólíkan tilgang byggðist áhrifamáttur þeirra oft á sömu grunnþáttum: að skapa sameiginlegan skilning á stöðunni, draga úr óvissu og móta sýn á framtíðina. Þess vegna held ég að væntingar verði til miklu víðar en í hagkerfinu einu. Í fyrirtæki myndi góður stjórnandi sjaldan segja að markmiði hefði ekki verið náð án þess að útskýra um leið hvað þyrfti að breytast til að ná því. Sama hugsun mætti ef til vill oftar eiga við í samfélaginu. Þegar Seðlabankinn segir að enn sé ekki svigrúm til frekari vaxtalækkana vakna eðlilega spurningar hjá heimilum og fyrirtækjum. Hvað þarf þá að gerast til að vextir lækki? Hvað get ég sjálfur gert og hvað þurfa aðrir að gera? Skýrar leikreglur skipta máli, og ákvörðunum þurfa að fylgja skilaboð um hvað þær þýða fyrir stjórnvöld, fyrirtæki og almenning. Í öllum mannlegum kerfum dregur skýrleiki úr óvissu, og óvissa hefur áhrif á hegðun. Skýrleiki skapar fyrirsjáanleika og með tímanum traust. Sama gildir á vettvangi stjórnmálanna. Pólitískar ákvarðanir geta aukið óvissu eða dregið úr henni. Hvernig ákvörðun er kynnt ræður þar oft meiru en ákvörðunin sjálf. Þjóðaratkvæðagreiðsla um umdeilt mál getur til dæmis skipt þjóðinni í fylkingar og magnað óvissuna, óháð niðurstöðunni. Það sem máli skiptir er ekki hvað verður ofan á, heldur hvernig forystan leiðir fólk í gegnum óvissuna, eða hvort hún skapar hana. En forysta snýst um meira en mælikvarða og leikreglur. Stundum snýst hún um að viðurkenna sameiginlega líðan. Góður stjórnandi sem leiðir fólk í gegnum erfitt tímabil felur ekki erfiðleikana, hann nefnir þá upphátt og segir um leið að hópurinn komist í gegnum þá saman. Þögn er sjaldan hlutlaus. Hún skapar óvissu. Og óvissa verður að svartsýni. Ég man eftir tilfinningunni þegar snjóflóðin féllu í Súðavík og á Flateyri árið 1995. Þrátt fyrir allan harminn fann maður fyrir leiðsögn, að einhver stæði í brúnni og talaði til þjóðarinnar. Þá tilfinningu vantaði haustið 2024. Það haust mældust bæði neysla og væntingar með því lægsta sem sést hafði árum saman. Það er erfitt að velta því ekki fyrir sér hvort þetta hafi haft áhrif. Þjóðin var að ganga í gegnum sameiginlega sorg eftir hörmulega atburði, ofbeldisverk sem urðu tveimur börnum að bana. Ástæður sem kölluðu á rödd sem segði: þið eruð ekki ein, og það verður allt í lagi. En forsætisráðherra, forseti og biskup voru þá öll ný í embætti, og þegar mest á reyndi steig engin sameinandi rödd fram. Kannski er það þess vegna sem mér finnst væntingavísitalan svo áhugaverður mælikvarði. Við lítum á hana sem afleiðingu efnahagslegra stærða. En gæti hún líka mælt hvort fólk skilur hvert samfélagið stefnir? Í stjórnmálafræði er rótgróin hefð fyrir því að trú almennings á framtíðina spái oft betur fyrir um hvort ríkisstjórnir haldi velli en margar hefðbundnar hagtölur. Væntingar eru þá ekki aðeins hagstærð heldur einn helsti mælikvarðinn á það hvort forysta nái til fólks. Ef svo er verður hlutverk leiðtoga stærra en að taka góðar ákvarðanir. Það felst líka í því að skapa sameiginlegan skilning, skýrar leikreglur og trúverðuga framtíðarsýn. En slík sýn verður ekki til í einni ræðu. Áramótaávarp lifir ekki árið. Traustið byggist upp jafnt og þétt, rétt eins og skipstjórinn sem lætur aftur og aftur heyra í sér úr brúnni. Væntingar verða ekki til af tilviljun. Þær mótast af efnahag, alþjóðamálum og persónulegum aðstæðum, en saga samfélaga bendir til þess að forysta hafi líka áhrif. Hún stjórnar ekki veðrinu en hún getur hjálpað fólki að rata í gegnum það. Kannski eru það sömu lögmál og gilda um góða stjórnendur og góða þjóðarleiðtoga. Stærðirnar breytast. En lögmálin breytast líklega síður. Kjartan Örn Sigurðsson, eigandi Ormsson hf. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Úr ólíkum áttum: Hraðar milli staða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Nýtt innflutningsgjald í bígerð Íslensk stjórnvöld setji stopp á nýja menntatækni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Manni kastað fram af svölum Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Flugvöllur rýmdur vegna skógarelda Þrír ungir menn handteknir vegna morðs Aðsend grein: Svartsýni verður ekki til af tilviljun Úr ólíkum áttum: Spara með hraða Úr ólíkum áttum: Hraðar milli staða Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Moskító á undanhaldi á Íslandi Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Mest lesið Í gær Í vikunni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Vilja byggja upp nýtt hverfi Þegar Ísland sótti ekki um Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Gular viðvaranir vegna hvassviðris „Það er bara algjört hrun“ Manni kastað fram af svölum Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá