Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áhyggjur og vonbrigði með breytingar á heilbrigðiseftirliti

Read Full Article →

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga lýsir vonbrigðum með undirbúning og framkvæmd á breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits og segir skamman fyrirvara vera verulegt áhyggjuefni. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðsins þar sem tekið var undir fyrri áhyggjur bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar í febrúar sagðist hún ekki telja fyrirliggjandi frumvarp og undirbúning málsins uppfylla kröfur sem gerðar væru til vandaðrar löggjafar, heildstæðrar greiningar og raunhæfrar innleiðingar. Hverjar eru breytingarnar? Alþingi samþykkti í júní frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi um áramótin. Verði þær samþykktar færast verkefni heilbrigðiseftirits til ríkisstofnana. Í greinargerð á vef Stjórnarráðsins segir: Með frumvarpinu eru heilbrigðisnefndir sveitarfélaga lagðar niður, horfið frá hefðbundinni svæðisskiptingu heilbrigðiseftirlits og framkvæmd eftirlitsins í meginatriðum færð til Umhverfis- og orkustofnunar. Frumvarpið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar um einföldun regluverks, hagræðingu og sameiningu stofnana og hluti af heildstæðum breytingum á eftirliti með atvinnustarfsemi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra hafa unnið að. Lögin taka gildi 1. janúar 2027. [...] Yfirumsjón eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum hefur verið á vegum Umhverfis- og orkustofnunar en framkvæmd eftirlitsins hefur verið á hendi níu heilbrigðiseftirlitssvæða sveitarfélaga. Með lögunum færist framkvæmd eftirlitsins og útgáfa starfsleyfa til Umhverfis- og orkustofnunar. Sú grundvallarbreyting verður því á að nú er málaflokkurinn á einu stjórnsýslustigi, sem veitir aukin tækifæri til einföldunar, samræmingar og skilvirkni í framkvæmd. Fullnægjandi mat lægi ekki fyrir á áhrifum breytinganna á lýðheilsu, matvælaöryggi, viðbragðsgetu eftirlits, þjónustu við íbúa og rekstraraðila, eða fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög. „Látið er hjá líða að ávarpa raunverulega hættu á þjónusturofi og slælegu eftirliti sem gæti varað í nokkur misseri,“ sagði í bókun bæjarstjórnar í febrúar. „Bæjarstjórn telur sérstaklega alvarlegt að fyrirhugað sé að færa tekjuberandi verkefni til ríkisins á meðan kostnaðarsöm verkefni sem ekki gefa af sér tekjur eru skilin eftir hjá sveitarfélögunum, án þess að fyrir liggi skýr mynd af verkaskiptingu, fjármögnun eða ábyrgð.“ Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi í lok júní að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og aðildarsveitarfélögin. Markmiðið væri meðal annars að kortleggja hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögunum eftir gildistöku breytinganna 1. janúar 2027 og tryggja óslitna framkvæmd opinberra eftirlitsverkefna. Fyrirhugað er að breytingarnar taki gildi um áramótin.

Share this article