Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sóttu kaldan og hrakinn ferðamann í Sveinsgil

  • What: Rescue operation for a lost hiker in Sveinsgili
  • Impact: Hiker found and rescued by multiple emergency teams
Read Full Article →

Fjölmennt lið björgunarsveita leitaði ferðamanns í um fimm eftir að hann lenti í hremmingum í Sveinsgili norður af Torfajökli. Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir manninn hafa hringt í Neyðarlínuna um klukkan hálf níu í kvöld. Hún segir leit hafa staðið yfir á því svæði þar sem staðsetningartækni Neyðarlínunnar staðsetti manninn. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að ferja fólk með fjarskiptabúnað úr Reykjavík á leitarsvæðið þar sem samband lögreglu við björgunarsveitir var slitrótt. Bryndís segir að áhöfn þyrlunnar hafi séð hvar maðurinn veifaði vasaljósi þegar þyrlan flaug yfir leitarsvæðið. Maðurinn var tekinn um borð í þyrluna og fluttur til Reykjavíkur. Hann sakaði ekki en var blautur og kaldur. Björgunarsveitarmenn úr hálendisvakt, Dagrenningu á Hvolsvelli, Flugbjörgunarsveitinni Hellu, Kyndli í Mosfellsbæ og Stjörnunni Skaftártungu tóku þátt í leitinni. Fréttin var uppfærð eftir að maðurinn fannst.

Share this article