Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bláa Lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum

Read Full Article →

Bláa Lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum á Mývatni og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum. Nái viðskiptin fram að ganga mun Bláa Lónið hf. eiga meirihluta í Norðurböðum. Til samanburðar átti Bláa Lónið í lok síðasta árs 34% hlut í Norðurböðum sem var bókfærður á 6,3 milljónir evra eða um 930 milljónir króna. Ekki er gefið upp hversu stóran hlut Bláa lónið hefur tryggt sér eða kaupverðið í viðskiptunum. Áður hafði félagið tryggt sér meirihluta í Fontana á Laugarvatni, eins og Viðskiptablaðið fjallaði um . „Kjarnastarfsemi þessara félaga er rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna er að styrkja grunnrekstur Bláa Lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins,“ segir í fréttatilkynningu. Sjá einnig Bláa lónið sækir fram „Bláa Lónið hefur frá upphafi staðið í fararbroddi í uppgangi baðlónsmenningar á Íslandi. Kaupin eru markviss liður í áformum félagsins um áframhaldandi áherslu á hágæða upplifun og vellíðan í vexti félagsins til framtíðar víða um land.“ Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins. „Uppbygging baðlóna á Íslandi hefur verið einn helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa Lónsins og skýr sérstaða landsins sem áfangastaðar. Bláa Lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja. Um leið endurspegla þeir þau miklu gæði afþreyingar og vellíðunar sem Bláa Lónið hefur lagt áherslu á og falla því vel að vörumerki félagsins,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir , forstjóri Bláa Lónsins. „Við sjáum af mánaðarlegum könnunum sem við gerum að þrír fjórðu ferðamanna heimsækja baðlón á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Árangur Bláa Lónsins hefur veitt fjölmörgum innblástur og er rekstur baðlóna í dag mikilvægur þáttur í sérstöðu og styrkleika landsins sem áfangastaðar.“ Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa Lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins.

Share this article