Bláa lónið hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins, og Grímur Sæmundsen stjórnarformaður veittu verðlaununum viðtöku. Í tilkynningu segir að fyrirtækið hafi hlotið verðlaunin fyrir árangur í uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og þróun starfsemi á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Frá stofnun árið 1992 hefur Bláa lónið vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fjölþætt fyrirtæki sem sameinar ferðaþjónustu, hótel- og veitingarekstur, rannsóknir, húðvöru og heilsutengda þjónustu. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 22 milljörðum króna árið 2025 og jukust um 36% milli ára. Til samanburðar voru tekjurnar 5,6 milljarðar árið 2014 og hafa því nær fjórfaldast á rúmum áratug. Sjá einnig Good Morning America mætir í Bláa lónið Bláa lónið hlaut Útflutningsverðlaunin fyrst árið 2004 og er nú á meðal fárra fyrirtækja sem hljóta þau tvisvar. Verðlaunin eru veitt í 38. sinn en þau voru fyrst afhent árið 1989. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Icelandair, Íslensk erfðagreining, Truenorth og Kerecis, en Embla Medical hlaut þau í fyrra. Alfreð Gíslason tók einnig við sendingu Samhliða viðurkenningu Bláa lónsins hlaut Alfreð Gíslason heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlaunanna fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis. Sjá einnig Tveir nýir í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Alfreð, sem fæddur er á Akureyri árið 1959, hóf feril sinn með KA og lék síðar með KR, TUSEM Essen og Bidasoa. Hann var valinn íþróttamaður ársins 1989 og hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð þjálfara í Þýskalandi. Hann stýrði Magdeburg til fyrsta Þýskalandsmeistaratitils félagsins og vann með liðinu þrjá Evróputitla. Þá tók hann við Kiel og stýrði liðinu í ellefu tímabil, þar sem liðið varð sex sinnum Þýskalandsmeistari og vann Meistaradeild Evrópu tvisvar. Frá árinu 2020 hefur hann stýrt þýska landsliðinu, sem vann silfur á Ólympíuleikunum 2024 og hafnaði í öðru sæti á Evrópumótinu í ár. Í úthlutunarnefnd sátu Sif Gunnarsdóttir frá embætti forseta Íslands, Magnús Þór Torfason frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, Katrín Olga Jóhannesdóttir frá Viðskiptaráði, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Árni Sigurjónsson frá Íslandsstofu, sem ber ábyrgð á framkvæmd verðlaunaveitingarinnar.