Innlent | mbl | 9.7.2026 | 12:05 Fyrrverandi bæjarstjóri leiðir hagræðingarteymi Fannar Jónasson leiðir verkefnið í nánu samstarfi við bæjarstjóra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Að því er segir í tilkynningu er markmið teymisins að stuðla að hagræðingu, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. Þá sé verkefnið liður í stefnu nýs meirihluta að endurskoða og bæta rekstur sveitarfélagsins. Fannar Jónasson gegnir lykilhlutverki Til að leiða þetta mikilvæga verkefni hefur Reykjanesbær gert verktakasamning við Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóra í Grindavík, sem hefur áratugalanga reynslu af stjórnun sveitarfélaga og mun gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna sveitarfélagsins. Meðal verkefna Fannars verður að stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun, fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir, leggja mat á frekari greiningar sem kunna að vera nauðsynlegar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna. Þá mun hann einnig veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf um framkvæmd verkefnanna og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila. Haft er eftir bæjarstjóranum Vilhjálmi Árnasyni að ætlunin sé að halda áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði. mbl.is/Sigurður Bogi Stjórnendur með ólíka sérþekkingu Umbóta- og hagræðingarteymið verður skipað starfsfólki og stjórnendum með ólíka sérþekkingu. Haft er eftir bæjarstjóranum Vilhjálmi Árnasyni að ætlunin sé að halda áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði. Fannar Jónasson mun sem fyrr segir leiða verkefnið í nánu samstarfi við bæjarstjóra. Gunnlaugur Kárason, formaður bæjarráðs, mun samræma samstarf við formenn ráða og nefnda og stuðla að því að hugmyndir um aukna skilvirkni og hagræðingu skili sér þvert á alla stjórnsýslu sveitarfélagsins. Andri Örn Víðisson mun leiða verkefni sem snúa að þróun stjórnsýslunnar, stafrænni umbreytingu og innleiðingu stefnumála sveitarfélagsins. Hermann Nökkvi Gunnarsson, aðstoðarmaður bæjarstjóra, verður teyminu til aðstoðar og jafnframt munu fulltrúar fjármála- og mannauðssviðs taka þátt í starfi þess. Teymið er tímabundið verkefnateymi sem hefur það hlutverk að leiða þessa vinnu, hraða nauðsynlegum breytingum, auka skilvirkni og skapa sterkari rekstrargrundvöll fyrir Reykjanesbæ. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tjáir sig eftir meiðslin klaufalegu Meðallaunþeginn fer á mis við 15 milljónir Paul Watson kaupir auglýsingar á strætóskýlum Fyrrverandi bæjarstjóri leiðir hagræðingarteymi Skellur fyrir Afríkuþjóðina Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Að minnsta kosti tveir að verki Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Kristrún leyst út með skammbyssu Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Tjáir sig eftir meiðslin klaufalegu Meðallaunþeginn fer á mis við 15 milljónir Paul Watson kaupir auglýsingar á strætóskýlum Fyrrverandi bæjarstjóri leiðir hagræðingarteymi Skellur fyrir Afríkuþjóðina Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Samkeppni snýst um meira en fjölda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áður óuppgefin varnartengd útgjöld farin að telja Allir níu í fjögurra vikna gæsluvarðhald í viðbót Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Ótrúlegt að fullorðið fólk leggist gegn áformunum Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Kærður til lögreglu fyrir akstur gröfu Kristrún leyst út með skammbyssu Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Bóluefni gegn ristli vinni einnig gegn heilabilun Njósnaskipið hringsólaði í kringum sjómann Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu