Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fannar leiðir hag­ræðingar­teymi Reykja­nes­bæjar

  • What: Reykjanesbær establishes special audit and governance team
  • Impact: Local government reform and transparency efforts
Read Full Article →

Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi með það að markmiði að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Reykjanesbær hefur gert verktakasamning við Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóra Grindavíkur, til að leiða verkefnið. Í tilkynningu á vef sveitarfélagsins segir að hann muni gegna lykilhlutverki við framkvæmd umbóta- og hagræðingarverkefna sveitarfélagsins. „Meðal verkefna Fannars verður að stýra vinnu við svokallaða núllgrunnsáætlun, fara yfir fyrirliggjandi stjórnsýslu- og fjárhagsúttektir, leggja mat á frekari greiningar sem kunna að vera nauðsynlegar og leiða eftirfylgni umbótaverkefna. Þá mun hann einnig veita kjörnum fulltrúum og stjórnendum ráðgjöf um framkvæmd verkefnanna og styðja sveitarfélagið í samskiptum við stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.“ Reykjanesbær segir að markmið teymisins sé að stuðla að markvissri hagræðingu, bæta þjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skattfé íbúa nýtist sem best. „Verkefnið er liður í þeirri stefnu nýs meirihluta að fara í heildstæða endurskoðun á rekstri sveitarfélagsins og innleiða umbætur sem skila raunverulegum árangri.“ „Við höfum þegar sýnt að við ætlum að fara vel með skattfé íbúa. Á fyrstu vikunum fækkuðum við pólitískum nefndum og ráðum og spöruðum sveitarfélaginu hátt í 10 milljónir króna á ári. Við höfum jafnframt lækkað laun bæjarstjóra sem skilar 4–5 milljóna króna sparnaði á ársgrundvelli og laun aðstoðarmanns bæjarstjóra eru um fjórum milljónum króna lægri á ári, að meðtöldum launatengdum gjöldum, en greidd voru fyrir aðstoðarmann bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili,“ segir Vilhjálmur Árnason , bæjarstjóri Reykjanesbæjar. „Það voru fyrstu skrefin, en nú tekur við næsti áfangi þar sem við ætlum að halda áfram að bæta rekstur sveitarfélagsins og tryggja að hver króna nýtist sem best í grunnþjónustu og innviði.“

Share this article